Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 26. október 2026 13:01 Viðreisn var stofnuð á grunni frjálslyndra hugsjóna. Lýðræði, mannréttindi, frelsi einstaklingsins, jafnrétti og ábyrgð eru þar í öndvegi. Við viljum opið samfélag þar sem fólk fær að njóta hæfileika sinna, óháð aldri, uppruna eða efnahag, og við berum virðingu fyrir ólíkum skoðunum. Viðreisn vill einnig öflugt atvinnulíf, heilbrigða samkeppni, nýsköpun og efnahagslegan stöðugleika. Við viljum að Ísland taki virkan þátt í Evrópusamstarfi og að þjóðin fái tækifæri til að taka upplýsta ákvörðun um aðild að Evrópusambandinu. Við viljum skilvirka stjórnsýslu, ábyrga nýtingu skattfjár og öfluga velferðarþjónustu. Þessi stefna er ástæða þess að ég gekk til liðs við Viðreisn. Ég tel að hún geti skilað íslensku samfélagi miklum ávinningi. En þá verðum við líka að spyrja okkur hvort við séum að ná þeim árangri sem stefnan á að skila. Það er nefnilega ekki nóg að hafa góða stefnu. Við þurfum fólk sem getur hrint henni í framkvæmd. Forystan verður að geta fylgt stefnunni eftir Ég hef starfað við stjórnun og stefnumótun um áratugaskeið og lært að jafnvel besta stefna er lítils virði ef þeir sem bera ábyrgð á framkvæmd hennar hafa ekki sameiginlega sýn á hvert á að stefna. Þetta á jafnt við um stjórnmálaflokka og opinberar stofnanir. Þegar við veljum fólk til forystu í Viðreisn þurfum við að gera ríkar kröfur. Það þarf að hafa sannfæringu fyrir grundvallargildum flokksins, geta talað fyrir stefnunni og ekki síður haft hæfni og kjark til að fylgja henni eftir. Forystufólk þarf að geta unnið saman, hlustað á ólík sjónarmið og sameinað krafta fólks um þau verkefni sem skipta mestu máli. Það þarf líka að geta tekið erfiðar ákvarðanir og staðið með þeim. Við eigum að geta séð í verkum forystunnar að samfélagið sé að þróast í þá átt sem við höfum sett okkur að markmiði. Ef við tölum fyrir frelsi, jafnrétti og lýðræði þurfa þau gildi að birtast bæði í vinnubrögðum okkar og þeim ákvörðunum sem við tökum. Annars verður stefnan lítið annað en falleg orð. Traust er forsenda árangurs Undanfarið hefur umræða um Viðreisn að verulegu leyti snúist um persónuleg málefni og erfiðleika einstaklinga. Sum þessara mála kalla á skýr svör og ábyrgð. Önnur varða veikindi og persónuleg áföll sem mér finnst að við eigum að sýna meiri manngæsku. Viðreisn, eins og aðrir flokkar, verður að gera kröfur um heilindi og ábyrgð þeirra sem gegna trúnaðarstörfum. Það er ekki hægt að byggja upp traust með því að líta fram hjá vandamálunum. En við megum heldur ekki láta persónuleg mál einstaklinga skyggja á það sem flokkurinn stendur fyrir og vill áorka. Traust almennings vinnst ekki með yfirlýsingum einum saman. Það byggist á því að fólk viti fyrir hvað flokkurinn stendur, sjái að forystan fylgi þeirri stefnu og finni að starfið skili árangri. Viðreisn verður að taka sínu mikilvæga hlutverki mjög alvarlega. Frá stefnuyfirlýsingum til raunverulegs árangurs Ég tel að Viðreisn eigi að leggja enn meiri áherslu á raunhæfa stefnumótun með skýrum árangursmarkmiðum. Það er auðvelt að samþykkja metnaðarfull markmið á flokksþingum. Erfiðara er að ákveða hvernig þeim verður náð, hvað það kostar, hver ber ábyrgð og hvenær og hvernig við ætlum að mæla árangurinn. Við skulum taka nokkur dæmi. Við viljum efnahagslegan stöðugleika og lægri vexti. Þá þurfum við að útskýra hvaða breytingar við teljum nauðsynlegar til að ná þeim markmiðum og hvernig við ætlum að meta árangurinn. Við viljum efla atvinnulífið og nýsköpun. Þá þurfum við að greina hvaða hindranir standa í vegi fyrir frumkvöðlum og fyrirtækjum og setja okkur markmið um að ryðja þeim úr vegi. Við viljum bæta opinbera þjónustu. Þá eigum við að geta sagt hversu mikið við ætlum að stytta afgreiðslutíma, einfalda reglur og bæta aðgengi fólks að upplýsingum og þjónustu. Sama hugsun á að gilda um menntun, heilbrigðisþjónustu og velferð. Við þurfum að vita hvaða breytingum við viljum ná fram og hvort þær bæti raunverulega líf fólks. Árangur verður ekki aðeins mældur í því hversu mörgum verkefnum er lokið eða hversu miklum fjármunum er varið. Við þurfum að meta hvort aðgerðirnar hafi skilað þeim samfélagslegu breytingum sem að var stefnt. Það er í mínum huga kjarni árangursríkrar stjórnsýslu og á einnig að vera leiðarljós stjórnmálanna. Viðreisn þarf að sýna hvað hún getur Viðreisn hefur mikilvægu hlutverki að gegna í íslenskum stjórnmálum. Frjálslynd samfélagssýn, trú á einstaklinginn, öflugt atvinnulíf og alþjóðlegt samstarf eiga fullt erindi við þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir. En við þurfum að gera meiri kröfur til okkar sjálfra. Við þurfum að velja til forystu fólk sem hefur bæði sannfæringu og hæfni til að framkvæma stefnuna. Við þurfum að forgangsraða verkefnum, setja okkur mælanleg markmið og gera reglulega grein fyrir árangrinum. Við þurfum líka að vera óhrædd við að ræða það sem betur má fara innan flokksins. Málefnaleg gagnrýni og opin umræða eiga að styrkja okkur, ekki veikja. Ég vil sjá Viðreisn verða enn öflugra stjórnmálaafl sem fólk treystir til að leiða breytingar. Flokk sem sýnir í verki að frelsi, lýðræði, mannréttindi og ábyrgð séu ekki aðeins hugsjónir heldur leiðarljós í daglegum störfum og ákvörðunum. Það er sú Viðreisn sem ég vil vinna að. Þegar upp er staðið verður Viðreisn ekki dæmd af því hversu góð stefnuskráin er, heldur af því hvort okkur tekst að breyta henni í betra samfélag til framtíðar. Höfundur er f ormaður Öldungaráðs Viðreisnar og með MS í stjórnun og stefnumótun – Árangursrík stjónsýsla. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorvaldur Ingi Jónsson Viðreisn Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun