Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson, Daði Pálsson, Jón Kjartan Jónsson, Steinþór Pálsson og Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifa 26. október 2026 08:03 Fyrirtæki í landeldi hafa umfangsmikil fjárfestingaráform til næstu ára. Takist þau áform getur orðið til ný og öflug útflutningsgrein sem skapar verðmæti, störf og skatttekjur um land allt. Þetta er uppbygging sem skiptir Ísland máli. Grunnurinn hefur þegar verið lagður. Innlendir og erlendir fjárfestar hafa lagt vel á 200 milljarða króna í uppbyggingu landeldis á Íslandi. Þær fjárfestingar hafa verið gerðar í þeirri trú að viðeigandi lagaumgjörð yrði tryggð, enda er landeldi einn af hornsteinum atvinnustefnu stjórnvalda. Skortur á skýrum og fyrirsjáanlegum lagaramma getur hins vegar komið í veg fyrir að frekari uppbygging verði að veruleika. Fjárfestar, bankar og alþjóðleg fyrirtæki taka ákvarðanir til áratuga og þurfa því að geta treyst á stöðugt og fyrirsjáanlegt regluverk. Í dag ríkir óvissa um landeldi á Íslandi vegna þess að framtíðarlagaumgjörð greinarinnar er óskýr og skortir þann fyrirsjáanleika sem fjárfestingar af þessari stærðargráðu krefjast. Tafir á skýrum lagaramma hafa raunverulegar afleiðingar. Bankar og fjárfestar halda að sér höndum og ákvarðanir frestast. Uppbygging innviða tefst, fjármagn verður dýrara og erlendir fjárfestar leita á aðra markaði þar sem meiri fyrirsjáanleiki ríkir. Stjórnvöld hafa sjálf skilgreint landeldi sem mikilvæga atvinnugrein til framtíðar. Samt hefur Alþingi enn ekki tryggt atvinnugreininni þá lagaumgjörð sem hún þarf til að vaxa og dafna. Við spyrjum, hvernig má það vera? Fyrirtækin geta byggt upp starfsemi, aflað fjármagns og tekið þá áhættu sem fylgir uppbyggingu. Alþingi ber hins vegar ábyrgð á því að atvinnugreinin búi við traustan og skýran lagaramma. Með áframhaldandi óvissu um framtíðarlagaumgjörð greinarinnar hefur Alþingi ekki staðið undir þeirri ábyrgð né þeim væntingum sem stjórnvöld hafa skapað. Við köllum eftir því að Alþingi tryggi að heildstæð lagaumgjörð fiskeldis taki gildi sem fyrst og taki mið af ólíkum forsendum landeldis og sjóeldis. Ísland hefur einstakt tækifæri til að byggja upp nýja og öfluga útflutningsgrein. Hættan er annars að fjármagnið leiti annað, ekki vegna skorts á vilja, þekkingu eða fjárfestingaráformum fyrirtækjanna, heldur vegna seinagangs Alþingis við að tryggja greininni skýra lagaumgjörð. Höfundar eru forsvarsmenn fjögurra af stærstu landeldisfyrirtækjum Íslands og framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. Fyrirtækin fjögur eiga öll aðild að landeldisdeild samtakanna. Einar Örn Ólafsson, forstjóri First Water Daði Pálsson, framkvæmdastjóri Laxey Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja Fiskeldis Steinþór Pálsson, forstjóri Thor Salmon Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Landeldi Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
Fyrirtæki í landeldi hafa umfangsmikil fjárfestingaráform til næstu ára. Takist þau áform getur orðið til ný og öflug útflutningsgrein sem skapar verðmæti, störf og skatttekjur um land allt. Þetta er uppbygging sem skiptir Ísland máli. Grunnurinn hefur þegar verið lagður. Innlendir og erlendir fjárfestar hafa lagt vel á 200 milljarða króna í uppbyggingu landeldis á Íslandi. Þær fjárfestingar hafa verið gerðar í þeirri trú að viðeigandi lagaumgjörð yrði tryggð, enda er landeldi einn af hornsteinum atvinnustefnu stjórnvalda. Skortur á skýrum og fyrirsjáanlegum lagaramma getur hins vegar komið í veg fyrir að frekari uppbygging verði að veruleika. Fjárfestar, bankar og alþjóðleg fyrirtæki taka ákvarðanir til áratuga og þurfa því að geta treyst á stöðugt og fyrirsjáanlegt regluverk. Í dag ríkir óvissa um landeldi á Íslandi vegna þess að framtíðarlagaumgjörð greinarinnar er óskýr og skortir þann fyrirsjáanleika sem fjárfestingar af þessari stærðargráðu krefjast. Tafir á skýrum lagaramma hafa raunverulegar afleiðingar. Bankar og fjárfestar halda að sér höndum og ákvarðanir frestast. Uppbygging innviða tefst, fjármagn verður dýrara og erlendir fjárfestar leita á aðra markaði þar sem meiri fyrirsjáanleiki ríkir. Stjórnvöld hafa sjálf skilgreint landeldi sem mikilvæga atvinnugrein til framtíðar. Samt hefur Alþingi enn ekki tryggt atvinnugreininni þá lagaumgjörð sem hún þarf til að vaxa og dafna. Við spyrjum, hvernig má það vera? Fyrirtækin geta byggt upp starfsemi, aflað fjármagns og tekið þá áhættu sem fylgir uppbyggingu. Alþingi ber hins vegar ábyrgð á því að atvinnugreinin búi við traustan og skýran lagaramma. Með áframhaldandi óvissu um framtíðarlagaumgjörð greinarinnar hefur Alþingi ekki staðið undir þeirri ábyrgð né þeim væntingum sem stjórnvöld hafa skapað. Við köllum eftir því að Alþingi tryggi að heildstæð lagaumgjörð fiskeldis taki gildi sem fyrst og taki mið af ólíkum forsendum landeldis og sjóeldis. Ísland hefur einstakt tækifæri til að byggja upp nýja og öfluga útflutningsgrein. Hættan er annars að fjármagnið leiti annað, ekki vegna skorts á vilja, þekkingu eða fjárfestingaráformum fyrirtækjanna, heldur vegna seinagangs Alþingis við að tryggja greininni skýra lagaumgjörð. Höfundar eru forsvarsmenn fjögurra af stærstu landeldisfyrirtækjum Íslands og framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands. Fyrirtækin fjögur eiga öll aðild að landeldisdeild samtakanna. Einar Örn Ólafsson, forstjóri First Water Daði Pálsson, framkvæmdastjóri Laxey Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri Samherja Fiskeldis Steinþór Pálsson, forstjóri Thor Salmon Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun