Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar 26. október 2026 09:17 – um vín sem siglir frá Íslandi til Danmerkur og Færeyja Sagt er að vegir Guðs séu órannsakanlegir. Líklega er eitthvað til í því, en svipaða sögu má segja um vegi frjálsra viðskipta. Þegar ég stofnaði Santé árið 2014 hafði ég að minnsta kosti ekki hugarflug til að ímynda mér að einn daginn ættum við viðskiptavini í fimm löndum. Hvað þá að við myndum senda vín til Danmerkur. Sending á leið til Danmerkur. Galdurinn er gamall og einfaldur. Viðskipti eiga sér stað þegar báðir aðilar telja sig hagnast. Kaupandinn vill vínið, seljandinn fær greitt og báðir ganga sáttari frá borði. Enginn tapar. Þetta hefur verið vitað frá dögum Adams Smith en það virðist þurfa að endurtaka það á hverri öld. Hólmfastur Guðmundsson frá Brekku á Vatnsleysuströnd skildi þetta fullkomlega. Árið 1698 seldi hann fáeina fiska kaupmanninum í Keflavík, sem bauð betur en kaupmaðurinn í Hafnarfirði. Hólmfastur fékk betra verð og kaupmaðurinn fékk fiskinn sem hann vildi. Báðir græddu. Fyrir þetta var Hólmfastur hýddur við staur. Glæpurinn var ekki að selja fisk heldur að selja hann í röngu verslunarumdæmi. Einokunarverslun Dana stóð frá 1602 til 1787 og byggðist á þeirri hugmynd að viðskipti væru eins manns gróði og annars tap. Það kom á daginn að tapið lenti nær allt á sama aðila. Í dag sendum við Dönum vín og þeir borga fyrir það með glöðu geði. Það er ekki hefnd fyrir verslunareinokunina, heldur einfaldlega betra fyrirkomulag. Danskir viðskiptavinir fá vín sem þeir vilja, við fáum viðskipti og ríkissjóður fær áfengisgjald (já lesandi góður þú lest rétt við erum að flytja út skattheimtu). Allir græða. Sending á leið til Færeyja. Færeyingar fá líka sína sendingu. Þeir þekkja einokunina ekki síður en við, því dönsk einokunarverslun stóð þar til 1856, tæpum sjötíu árum lengur en hér. Í dag kaupa þeir það sem þeim sýnist, af hverjum sem þeim sýnist. Það er reyndar nokkuð kaldhæðið að eftir reynsluna af einokunarverslun Dana skyldu Íslendingar verða svo hrifnir af hugmyndinni að þeir settu upp sína eigin. Hún hefur nú verið starfrækt í rúm hundrað ár. Danir lögðu sína niður og fengu sér vínbúðir á hverju götuhorni. Við héldum okkar og fengum okkur biðraðir á föstudögum. Auðvitað gerir illkvittnasta embættismannakerfi heims (utan Norður-Kóreu) allt sem það getur til að koma í veg fyrir frjáls viðskipti og valda íslensku atvinnulífi og neytendum búsifjum. En embættismannakerfi hafa alltaf verið hugmyndarík þegar kemur að því að verja fólk fyrir bættum kaupmætti. Sagan geymir mörg dæmi: Snjórinn í Japan. Árið 1986 reyndu japönsk stjórnvöld að halda evrópskum skíðum frá markaðnum með þeim rökum að japanskur snjór væri öðruvísi en evrópskur. Snjórinn tók ekki afstöðu. Orrustan við Poitiers, seinni hálfleikur. Árið 1982 ákváðu Frakkar að öll myndbandstæki frá Japan skyldu tollafgreidd í Poitiers, litlum bæ langt inni í landi þar sem örfáir tollverðir opnuðu hvern kassa, lásu hverja handbók og skoðuðu hvert raðnúmer. Staðurinn var valinn af kostgæfni, því þar hafði Karl Martel stöðvað innrás árið 732. Myndbandstækin voru stöðvuð með svipuðum hætti, bara með meiri pappírsvinnu. Kjúklingaskatturinn. Þegar Evrópuríki lögðu tolla á bandaríska kjúklinga árið 1964 svöruðu Bandaríkjamenn með 25% tolli á pallbíla. Kjúklingarnir eru löngu gleymdir en tollurinn á pallbílunum er enn í gildi. Í öllum þessum dæmum töpuðu báðir aðilar. Neytendur borguðu meira og seljendur seldu minna. Eini sigurvegarinn var pappírinn. Íslenska dæmið sómir sér vel í þessum hópi. Og talandi um kaldhæðni: fjármálaráðherra Viðreisnar, flokks sem berst fyrir því að Íslendingar njóti kostanna af því að tilheyra Evrópusambandinu, berst á hæl og hnakka gegn staðfesturéttinum sem þó er tryggður í EES-samningnum. Málatilbúnaðurinn gengur út á að ef vörulager er staðsettur á Íslandi megi túlka einokunarlögin þannig að reksturinn feli í sér sniðgöngu og draga hann fyrir dómstóla. Þetta er sami rekstur og skilar ríkissjóði áfengisgjaldi af vínum sem síðan eru flutt úr landi. Ríkið fær sem sagt sinn skerf af hverri flösku sem fer til Kaupmannahafnar og Þórshafnar en telur um leið að þeir sem senda hana eigi heima í dómsal. Hólmfastur hefði kannast við rökin. Það er ekki salan sem er glæpurinn heldur staðsetningin. Á meðan halda sendingarnar áfram. Til Danmerkur, til Færeyja og víðar, með vín sem er meiri eftirspurn eftir en framboð um allan heim. Hver einasta sending er lítill samningur þar sem allir ganga sáttir frá borði. Ef einhver í fjármálaráðuneytinu vill kynna sér hvernig það virkar er velkomið að kíkja á lagerinn. Höfundur er annar eigenda Santé. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnar Sigurðsson Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Sjá meira
–
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun