„Þetta var allt of mikið“ Aron Guðmundsson skrifar 18. október 2026 08:00 Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands vísir/Anton Arnar Gunnlaugsson hefði ekki tekið því fyrir gluggann að vera með átta stig eftir fyrstu fjóra leiki Íslands í C-deild Þjóðadeildarinnar. Það er hins vegar staðan eftir langan glugga sem Arnar telur að sé ekki kominn til að vera.
Íslenska landsliðið sótti tvo sigra og gerði tvö jafntefli í nýafstöðnum landsleikjaglugga. Liðið er á toppi síns riðils með tveggja stiga forskot en tvö jafntefli á móti Eistlandi, sem og agabrot nokkurra leikmanna, varpa skugga á gluggann. Landsliðsþjálfarinn hefði viljað fleiri stig nú þegar tveir leikir eru eftir af riðlakeppninni. „Átta stig. Hefði ég tekið því fyrir gluggann? Nei. En miðað við hvernig glugginn þróaðist og miðað við hvað gerðist. Þetta leið eins og fjögur ár, þessir fjórir leikir. Það gerðist eitthvað svo mikið í þessum glugga. Tveggja stiga forskot og með þetta í okkar höndum og heimaleik í lokin á móti Lúxemborg, þá er ég bara mjög sáttur,“ segir Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, í viðtali við Vísi. Þá tekur Arnar ýmislegt jákvætt úr glugganum. „Stefán Teitur til dæmis. Það er mér óskiljanlegt af hverju hann hefur ekki fengið meira hrós í þessum glugga. Það er ekkert sjálfgefið að miðjumaður detti í hafsent á landsliðssviðinu og standi sig eins og hann gerði í þessum leikjum. Það sýnir bara hans karakter og fótboltagreind, að hafa tæklað þetta verkefni eins vel og hann gerði. Svo fengum við kannski annað, allt aðra týpu í hægri bakverði, Mikael Neville Anderson.“ Klippa: Hefði ekki tekið þessu fyrir fram Fjórir leikir á ellefu dögum, langt landsliðsverkefni og margt sem gerðist innan og utan vallar. „Ég held í fyrsta lagi að þessi gluggi sé ekki kominn til að vera. Ég held að þetta hafi verið allt of mikið. Þetta var allt of mikið held ég fyrir leikmenn og fyrir teymið einhvern veginn. Ég held að gæðin hafi fengið svolítið að falla undir lokin, ekki bara hjá okkur heldur hjá vel flestum.“ Spjallið við Arnar um nýafstaðinn landsleikjaglugga má sjá í spilaranum hér ofar í fréttinni.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Fótbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Íslenski boltinn Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Manzambi reyndist hetja Aston Villa Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Elísabet tjáir sig: Grátlega nálægt draumnum í þrígang Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Syndaaflausn Infantino: „Páfinn yrði himinlifandi“ Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Sjá meira