Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Sindri Sverrisson skrifar 17. október 2026 11:00 Pedro Neto sá til þess að Chelsea færi með sigur af hólmi með tveimur mörkum. Getty/Molly Darlington Pedro Neto skoraði bæði mörk Chelsea þegar liðið varð það fyrsta á þessari leiktíð til að vinna Everton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Chelsea fagnaði 2-0 sigri en Neto kom liðinu yfir strax í upphafi seinni hálfleiks með skoti úr teignum eftir góðan undirbúning Jorrel Hato sem kom inn í byrjunarlið Chelsea. Staðan var svo 1-0 þar á lokamínútu venjulegs leiktíma þegar Neto skoraði aftur en boltinn hrökk þá til hans í teignum eftir aukaspyrnu og hann kláraði færið fagmannlega. Liðin voru jöfn að stigum fyrir leikinn en Chelsea er núna í 4. sæti með 13 stig, fimm stigum á eftir toppliði Manchester City sem á leik sinn við Ipswich til góða í dag. Enski boltinn Fótbolti Everton FC Chelsea FC