Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Andri Broddason skrifar 16. október 2026 15:02 Jason Wilcox var harðlega gagnrýndur í vikunni og það ekki í fyrsta skipti sem knattspyrnustjóri Manchester United. Catherine Ivill/Getty Images Manchester United heimsækir Elland Road á sunnudaginn þar sem liðið mætir Leeds í ensku úrvalsdeildinni. Sagan virðist ætla að endurtaka sig þar en síðast þegar liðið heimsótti Leeds varð dramatík þegar Jason Wilcox, knattspyrnustjóri Manchester United, var gagnrýndur af þáverandi þjálfara Manchester United, Ruben Amorim. Nú er aftur verið að gagnrýna Wilcox en varnarmaðurinn Lisandro Martinez gagnrýndi aðgerðaleysi stjórnar félagsins eftir að félagið tapaði fyrir Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu fyrr í vikunni.
Á síðasta tímabili var þjálfarasætið orðið heitt undir Amorim þegar liðið heimsótti Elland Road. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli en blaðamannafundur eftir leikinn átti eftir að vekja mikla athygli. Þar sagðist Amorim ekki fá að stjórna þeim hlutum sem hann vildi þegar hann var ráðinn sem þjálfari liðsins. Seinna kom í ljós að fyrir leikinn gegn Leeds hafi Amorim farið á fund með Wilcox þar sem Amorim var beðinn um að breyta leikkerfinu sínu. Portúgalski þjálfarinn hafði engan áhuga á því og hélt áfram að spila sitt 3-4-3 kerfi. Amorim var rekinn sem þjálfari Manchester United tveimur dögum eftir jafnteflið gegn Leeds til þess að losa um spennuna milli stjórnar og þjálfara. Það sem hjálpaði stjórninni í þessari ákvörðun var að gengi liðsins var ekki gott undir þjálfun Amorim og því hafi stuðningsmenn verið ánægðir með ákvörðunina. Bjargvætturinn Carrick Michael Carrick var ráðinn til að taka við félaginu út tímabilið og náði hann að tryggja Meistaradeildarsæti fyrir Manchester United. Eftir þann frábæra árangur var hann ráðinn sem þjálfari liðsins. Eins og greint var frá í gær fór Lissandro Martinez á fund með stjórn Manchester United eftir gagnrýni hans á aðgerðir stjórnarinnar. Staðan um helgina virðist því vera keimlík því þegar liðin mættust síðast á heimavelli Leeds. Það sem Lissandro Martinez gagnrýndi mest var að stjórn Manchester United fjárfesti ekki nógu mikið í að styrkja leikmannahóp félagsins. Það var ljóst að því að ná Meistaradeildarsæti fylgir meira leikjaálag og þurfti liðið fleiri leikmenn í hverja stöðu til þess að geta hvílt leikmenn og róterað liðinu. Vantar leikmenn í margar stöður Andrey Santos, Youri Tielemans og Carlos Baleba voru þeir leikmenn sem voru keyptir en allir þessir leikmenn eru miðjumenn. Liðið er án vinstri bakvarðar þar sem Luke Shaw er meiddur og án hreinræktaðs framherja á meðan Benjamin Sesko er einnig meiddur. Jason Wilcox er því í vandræðum enn og aftur fyrir útileik gegn Leeds en málið verður ekki jafn auðveldlega leyst núna. Síðast gat hann einfaldlega rekið Amorim en það er erfiðara að gera það með mikilvægan leikmann eins og Martinez. Því lengur sem vandræðagangur Manchester United heldur áfram því meiri sannleikur er í gagnrýni Martinez á Wilcox. Leikur Leeds og Manchester United er sýndur í beinni útsendingu á sunnudaginn á Sýn Sport.
Enski boltinn Manchester United Leeds United Fótbolti Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Kane lendir um helgina Körfubolti Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Uppsagnir hjá Arsenal Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Lét gamminn geisa og fær að heyra það Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Sjá meira