Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Andri Broddason skrifar 10. október 2026 16:00 Leikmenn Tottenham fögnuðu jöfnunarmarkinu vel. Jan Kruger/Getty Images Bæði Manchester United og Tottenham hafa byrjað tímabilið í ensku úrvalsdeildinni ekki eins og liðin hefðu viljað og því mikilvægt fyrir bæði lið að sækja sigur. Fyrri hálfleikurinn endurspeglaði gengi liðanna í deildinni þar sem bæði lið spiluðu illa en 0-0 var staðan í hálfleik. Tottenham fékk hættulegri færi í fyrri hálfleik en Manchester United sýndi meiri lit í þeim seinni og byrjaði liðið að byggja sóknir hægt og rólega. Á 73. mínútu náðu heimamenn loksins að brjóta ísinn þegar Bryan Mbeumo skoraði fyrir Manchester United. Leikmenn Tottenham voru skiljanlega pirraðir eftir markið en Rodrigo Bentancur tók pirringinn skrefi of langt. Eftir kýtingar milli hans og Luke Shaw þá setti hann hausinn sinn við haus Shaw með mikilli ákefð. Shaw féll niður við atvikið og fékk Bentancur réttilega beint rautt spjald. Staðan leit ekki vel út fyrir Tottenham en í uppbótartíma kom fyrirgjöf inn í teig Manchester United og voru Dominic Solanke framherji Tottenham og Lissandro Martinez varnarmaður United í baráttu um boltann. Solanke var sterkari og náði að skalla boltann í netið og jafna metin fyrir Tottenham. Leikurinn endaði því með 1-1 jafntefli og verður það að teljast sanngjörn úrslit þar sem hvorugt liðið bauð upp á flugeldasýningu í dag. Enski boltinn Fótbolti Manchester United Tottenham Hotspur