Enski boltinn

Segir að gagn­rýni Martinez sé í bak­sýnis­speglinum

Andri Broddason skrifar
Michael Carrick horfir fram á veginn en ekki á það sem liðið er.
Michael Carrick horfir fram á veginn en ekki á það sem liðið er. Getty/Martin Rickett

Michael Carrick, þjálfari Manchester United, sagði að leikmannahópur Manchester United væri búinn að ýta frá sér málinu sem Lissandro Martinez vakti athygli á eftir tapið gegn Atletico Madrid í Meistaradeild Evrópu fyrr í vikunni.

Margir hafa tjáð sig um athugasemd Lissandro Martinez þegar hann gagnrýndi stjórn Manchester United fyrir að hafa ekki fjárfest nóg í félaginu fyrir tímabilið. Wayne Rooney, fyrrum leikmaður Manchester United, var hræddur um að athugasemd Martinez myndi kljúfa búningsklefa félagsins en Michael Carrick segir svo ekki vera.

„Það eru margir búnir að segja ýmsa hluti um málið, fyrrverandi leikmenn og ekki fyrrverandi leikmenn, en það þýðir ekki að þeir viti hvað er að gerast innan veggjanna,“ sagði Carrick á blaðamannafundi fyrir leik helgarinnar gegn Leeds í ensku úrvalsdeildinni.

„Þrátt fyrir að fólk sé að tala í fjölmiðlum þýðir það ekki að það sé sannleikurinn. Ég er að segja þér sannleikann núna. Leikmannahópurinn er á frábærum stað, betri en ég hef séð í langan tíma.“

Lissandro Martinez var sektaður fyrir viðtalið sitt og baðst afsökunar á tímasetningu viðtalsins og að tilfinningar eftir tapið hafi verið miklar. Carrick staðfesti á blaðamannafundinum að málið væri leyst og Martinez verður í leikmannahóp Manchester United gegn Leeds.

„Við sem lið þurfum að halda áfram þessari ákefð, eljusemi, samheldni og baráttuanda ásamt öllu sem því fylgir. Sem hópur þurfum við að nota það og við þurfum að nota það á réttan hátt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×