Gular viðvaranir um allt vestanvert landið til morguns Lovísa Arnardóttir og Gunnar Reynir Valþórsson skrifa 20. mars 2026 07:21 Gul viðvörun er á vestanverðu landinu og von á nokkrum éljum með. Vísir/Vilhelm Gular veðurviðvaranir eru nú í gildi um allt vestanvert landið og einu svæðin sem eru undanskilin eru Norðurland eystra, Austurland og Austfirðir. Á höfuðborgarsvæðinu verður viðvörun í gangi í allan dag og fram á morgundaginn en spáð er suðvestan hvassviðri og dimmum éljum. Annars staðar er einnig spáð hvassviðri eða jafnvel stormi og er varasamt að vera á ferðinni.
Holtavörðuheiðinni var lokað í gærkvöldi vegna veðursins og í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að beðið verði með mokstur nú í morgunsárið. Brattabrekka er einnig ófær og óljóst hvenær hægt verður að opna þar og þá eru vegir á Vestfjörðum víða lokaðir, til að mynda Dynjandisheiðin, Steingrímsfjarðarheiðin og Þröskuldar. Öxnadalsheiðin fyrir norðan er hins vegar opin en þar er óvissustig í gildi sem þýðir að vegurinn gæti lokað með stuttum fyrirvara. Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg var nóttin nokkuð róleg en björgunarsveitir sinntu þó útköllum vegna foks á bæði Suðurnesjum og Selfossi. Í Suðurnesjabæ voru björgunarsveitir kallar út vegna garðskúrs sem fauk og vegna þakplatna á Selfossi. Flugi aflýst Öllu millilandaflugi á Keflavíkurflugvelli hefur verið aflýst fram á eftirmiðdaginn í það minnsta og sömu sögu er að segja af innanlandsfluginu hér á landi ef flugið til og frá Vestmannaeyjum er undanskilið. Fram kemur í tilkynningu frá Herjólfi að fyrri ferðum dagsins til Vestmannaeyja hafi verið aflýst vegna veðurs. Í tilkynningu frá Icelandair segir að farþegar sem áttu bókað með flugi sem nú hefur verið aflýst verði endurbókaðir og munu fá senda nýja ferðaáætlun. Vegna umfangs röskunarinnar má búast við að endurbókunarferlið taki lengri tíma en venjulega. Lægð yfir landinu og önnur á leiðinni Í veðurspá veðurfræðings Veðurstofunnar kemur fram að í dag sé spáð suðvestan 15 til 23 metrum á sekúndu og dimmum éljum, en heldur hægari og yfirleitt þurrt á Austurlandi. Frost verður víða núll til sex stig. Samkvæmt spá lægir smám saman á morgun en verður áfram él. Hiti verður þá í kringum frostmark. Svo snýst í austan- og norðaustan 8-15 með snjókomu eða rigningu sunnan- og austantil annað kvöld. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að nokkuð djúp lægð þokist norðaustur milli Grænlands og Vestfjarða í dag. Hún valdi suðvestan hvassviðri eða stormi með éljagangi. Austurland sleppi þó að mestu. Lægðin grynnist svo á morgun, þá lægi og minnki úrkoman. Annað kvöld nálgist svo önnur lægð úr suðri. „Hún fer væntanlega í norðaustur skammt fyrir sunnan og austan land. Aðfaranótt sunnudags er spáð norðvestan hríðarveðri, einkum á austanverðu landinu. Síðan ætti veðrið að ganga tiltölulega fljótt niður þegar lægðin fjarlægist en víða má búast við éljum seinnipartinn á sunnudag,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Nánar um veður á vef Veðurstofunnar og færð á vef Vegagerðarinnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðvestan 13-20 m/s og éljagangur um morguninn, en þurrt á Austurlandi. Lægir smám saman þegar líður á daginn og hiti um eða undir frostmarki. Austan og norðaustan 8-15 um kvöldið og snjókoma eða rigning sunnan- og austantil. Á sunnudag: Norðvestan 15-23 m/s suðaustan- og austanlands um morguninn, annars hægari. Víða snjókoma. Dregur síðan úr vindi og él í flestum landshlutum seinnipartinn og frost 0 til 8 stig. Á mánudag: Gengur í austan og norðaustan 13-20 með snjókomu, en slyddu eða rigningu syðst. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Norðanátt og snjókoma, en úrkomulítið sunnantil. Frost 0 til 7 stig. Á miðvikudag: Norðvestanátt og él norðanlands, annars að mestu þurrt. Kalt í veðri. Á fimmtudag: Snýst líklega í suðaustanátt með slyddu eða snjókomu sunnan- og vestanlands.
Veður Fréttir af flugi Björgunarsveitir Færð á vegum Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira