Gular viðvaranir á morgun Bjarki Sigurðsson skrifar 23. september 2026 06:57 Varasamt ferðaveður verður fyrripart dags á morgun á Suðausturlandi. Mynd tekin í Reynisfjöru 2022. Vísir/Vilhelm Í fyrramálið taka gular viðvaranir gildi á Suður- og Austurlandi vegna austan storms og mikillar rigningar. Vindhviður gætu náð 35 metrum á sekúndu.
Veðurviðvaranakort Veðurstofunnar verður ansi gult á morgun. Klukkan sjö í fyrramálið taka gildi viðvaranir á Suðurlandi og á miðhálendinu vegna mikilla vinda. Vindhviður verða staðbundið yfir 35 metrum á sekúndu, til dæmis undir Eyjafjöllum og í Vestmannaeyjum. Varasamt ferðaveður og fólk hvatt til að huga að lausamunum. Svona er viðvaranakortið fyrir næstu tvo sólarhringa. Viðvaranirnar taka þó ekki allar gildi á sama tíma. Á Suðausturlandi er varað við talsverðri eða mikilli rigningu. „Búast má við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum og getur valdið tjóni og raskað samgöngum. Einnig er aukið álag á fráveitukerfi. Fólk er hvatt til að sýna aðgát og einnig að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón,“ segir á vef Veðurstofunnar. Skömmu síðar bætist í viðvaranirnar á Suðausturlandi og þá er einnig varað við stormi, hvassast vestan Öræfajökuls og í Mýrdal. Á Austfjörðum er varað við talsverðri eða mikilli rigningu. Viðvaranirnar falla allar úr gildi eftir því sem líður á daginn en klukkan þrjú tekur gildi viðvörun á Vestfjörðum vegna norðaustan storms. „Norðaustan 15-23 m/s og vindhviður staðbundið yfir 30 m/s. Einnig má búast við rigningu sem breytist yfir í snjókomu á fjallvegum á föstudag. Varasamt ferðaveður,“ segir á vef Veðurstofunnar. Sú viðvörun er í gildi í heilan sólarhring, allt til klukkan þrjú á föstudag.
Veður Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira