Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Áróra L Davíðsdóttir skrifar 27. september 2026 08:03 Enn eru skriðuviðvaranir í gildi á Ströndum og norðanverðum Vestfjörðum. Vísir Búast má við talsverðri úrkomu á norðvesturhluta landsins, rigningu á láglendi en slyddu eða snjókomu til fjalla. Úrkomulítið verður annars staðar á landinu, þó má búast við vætu á köflum suðaustan- og austanlands. Hiti verður á bilinu þrjú til ellefu stig, svalast á Vestfjörðum.
Kyrrstæð lægð við norðausturströnd landsins beinir svalri norðurátt yfir norðvesturhluta landsins, segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Búast megi við talsverðri rigningu og slyddu á svæðinu. Mildara verður það í öðrum landshlutum þar sem verður heldur úrkomulítið. Spáð er vætu á köflum suðaustan- og austanlands. Skriðuviðvaranir eru enn í gildi á norðvesturhluta landsins vegna mikillar úrkomu síðastliðna daga, einkum á norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum. Enn er hætta á skriðum og grjóthruni, sérstaklega úr neðri hlutum hlíða þar sem ekki snjóar, segir á vef Veðurstofunnar. Nokkuð hefur verið um grjót sem hefur fallið á vegi og fólk er hvatt til að fylgjast með uppfærðum veðurspám, viðvörunum og tilkynningum. Útlit er fyrir svipað veður á morgun en búist er við því að það stytti upp austanlands. Á þriðjudag og miðvikudag er spáð stífri austlægri átt og gæti orðið býsna vætusamt á stærstum hluta landsins. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á morgun:Fremur hæg breytileg átt, en norðaustan 8-13 m/s norðvestantil. Rigning norðanlands, einkum við ströndina, annars skýjað með köflum og stöku skúrir. Hiti 4 til 11 stig, svalast á Vestfjörðum.Á þriðjudag:Austan og suðaustan 10-15 og rigning, talsverð eða mikil úrkoma sunnan- og vestanlands. Hiti 6 til 12 stig.Á miðvikudag:Stíf austanátt og rigning, talsverð úrkoma á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hiti 8 til 15 stig.
Veður Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Sjá meira