Innlent

Fréttamynd

„Við erum til­búin að skoða lengingu skóla­ársins“

Formaður Kennarasambands Íslands segir að sambandið sé tilbúið að skoða lengingu skólaársins ef samfélagið telji það sér til framdráttar. Kennarasambandið kynnti í dag tillögur að stefnumótun í menntamálum til framtíðar þar sem það kallaði eftir samfélagslegu samtali um skólastarf.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Tíma­rit eigi hvergi stað og fái enga styrki

Birtíngur hefur krafist þess að úthlutunarnefnd um stuðning við einkarekna fjölmiðla endurskoði frummmat sitt eftir að nefndin komst að þeirri niðurstöðu að útgáfufélagið uppfylli ekki skilyrði fyrir rekstrarstuðningi vegna ársins 2025. Vísað er til þess að efni sem birt er í Vikunni og Húsum og híbýlum sé samfélagslegt efni frekar en fréttir eða fréttatengt efni. Birtíngur hefur skilað andmælum vegna málsins. 

Innlent
Fréttamynd

Segir fjölmiðla­nefnd stjórn­lausa og sektaóða

Logi Már Einarsson menningarmálaráðherra tók á móti nokkrum af helstu hlaðvörpum landsins á fundi í morgun. Þar voru málefni fjölmiðlanefndar rædd en einn hlaðvarpara, Þórarinn Hjartarson sem rekur hlaðvarpið Ein pæling, segir að eftir að Logi lýsti yfir stefnubreytingu gagnvart nefndinni hafi hún sett í sjötta gír og hert sektasóknina á hendur þeim.

Innlent
Fréttamynd

Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin

Mjög erfitt er að halda verð- og gjaldskrárhækkunum innan verðbólgumarkmiðs þegar laun hækka meira, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann fagnar þó viðleitni opinberra aðila til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og telur ávinninginn geta skilað sér í lægri vaxtakostnaði.

Innlent
Fréttamynd

Kennarar boða tíðindi

Kennarasamband Íslands boðaði í dag til blaðamannafundar þar sem sambandið kynnti sína sýn og áherslur til bætingar menntakerfis Íslands. Fundurinn var í beinni útsendingu á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin

Það er skammsýni að leggja mikla áherslu á launahækkanir við núverandi aðstæður, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann segir lægri verðbólgu og lægri vexti vera það sem íslensk heimili þurfi helst á að halda og hafnar fullyrðingum um að laun hafi ekki áhrif á verðbólgu.

Innlent
Fréttamynd

Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf

Um sex atvinnulausir eru um hvert laust starf og hlutfallið hefur ekki verið svo hátt frá því í farsóttinni. Seðlabankastjóri viðurkennir hættu á að vöxtum verði haldið of háum of lengi og atvinnuleysi aukist meira en nauðsynlegt sé.

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum

Háskóli norðurslóða og Háskóli Íslands standa að opnu málþingi um áskoranir norðurslóða. Viðburðurinn fer fram í Háskóla Íslands í aðdraganda Hrinborðs norðurslóða. Hægt er að fylgjast með í beinni útsendingu hér á Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun

Formaður Eflingar segir það glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu.

Innlent
Fréttamynd

Kjara­bar­átta kennara bitni á námi barnanna

Formaður Heimilis og skóla skorar á mennta- og barnamálaráðherra að endurvekja áform um að lengja skólaár grunnskólabarna. Rökfærslur formanns Kennarasambandsins eigi sér enga stoð. Þróun námsins á Íslandi ætti ekki að snúast einungis um kjarabaráttu kennara, sem bitni á námi barnanna.

Innlent
Fréttamynd

Sól­veig Anna segir glap­ræði að segja upp samningum

Formaður Eflingar segir glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu.

Innlent
Fréttamynd

Leigubremsan „aug­ljós­lega mjög heimsku­leg“

Boðuð leigubremsa ríkisstjórnarinnar er „augljóslega mjög heimskuleg“, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann vonar að fallið verði frá henni og segir í samtali við fréttastofu að aðgerðin gæti gert illt verra.

Innlent
Fréttamynd

Þurfi að bæta eftir­lit í stað þess að meina au pair að­gang

Harpa Söring Ragnarsdóttir hefur hýst fjölda au pair-stúlkna, til að mynda frá Filippseyjum, og segir aðstoð þeirra hafa gjörbreytt heimilislífinu til hins betra. Lítið sem ekkert eftirlit hafi verið með au pair, sem ætti að bæta í stað þess að banna komu filippseyskra stúlkna alveg.

Innlent
Fréttamynd

Fundur VR og SA hafinn

Fulltrúar VR og Rafiðnaðarsambands Íslands eru mættir í húsakynni ríkissáttasemjara til að funda með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins, sem voru örlítið seinir.

Innlent
Fréttamynd

Sam­komu­lagið hafi ekki á­hrif á við­ræður VR

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir að samkomulag Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar við Samtök atvinnulífsins, hafi ekki áhrif á viðræður VR. Hún vonast eftir lausnamiðuðu samtali þar sem fulltrúar SA hafi ítrekað látið sig hverfa þegar einhver lending næst.

Innlent
Fréttamynd

Fram­lengja samninga út næsta ár

Starfsgreinasamband Íslands, Efling, Samiðn og Byggiðn hafa gert samkomulag við Samtök atvinnulífsins um að framlengja kjarasamninga. Samkomulagið felur í sér að kjarasamningar halda gildi sínu út næsta ár og var skrifað undir það í kvöld.

Innlent