Innlent

Ekkert út á Dorriti að setja en frá­sögn eig­enda ekki á rökum reist

Ísraelskir ferðamenn sem eru sagðir hafa ógnað starfsmanni kaffihússins og sætabrauðsverslunarinnar Lava Sweets og valdið þar tjóni segja frásögn palenstínskra eigenda staðarins ekki eiga við rök að styðjast. Þeir hafi til að mynda alls ekki farið inn á staðinn með það í huga að áreita eða ógna fólki. Dorrit Moussaieff var ein þeirra sem tjáðu sig um málið en mennirnir fjórir segja ekki við hana að sakast, hún hafi einfaldlega trúað því sem eigendurnir sögðu.

Innlent

Allt gert til að stöðva birtinguna

Vorið 2009 tók við ríkisstjórn Vinstri grænna og Samfylkingarinnar, í kjölfar bankahrunsins. Eitt umdeildasta verkefni hennar varð umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Jón Bjarnason sat í stjórninni sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þótt hann væri sjálfur eindreginn andstæðingur aðildar.

Innlent

Skilti í setrinu á ensku: „Hjartan­lega sam­mála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“

Forstöðumaður Þórbergsseturs segist geta tekið undir þá gagnrýni að skilti í veitingasölu menningarsetursins ættu ekki að vera á ensku; það væri viðeigandi ef þau væru frekar á íslensku eða esperanto. Langflestir gestir setursins séu þó erlendir ferðamenn og því sé auðvelt að gleyma sér í því að gera íslenskunni hátt undir höfði. Það gæti vel verið að skiltunum verði skipt út.

Innlent

Um sex­tán þúsund greitt at­kvæði utan kjör­fundar

Rúm sextán þúsund hafa greitt atkvæði utan kjörfundar í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram þann 29 ágúst. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu segir utankjörfundaratkvæðagreiðsluna ganga vel. Það sé mikill áhugi.

Innlent

Aðal­með­ferð hefst í Reyk­holtsmálinu

Aðalmeðferðin í Reykholtsmálinu svokallaða hefst í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Sex sæta ákæru fyrir að hafa frelsissvipt, fjárkúgað og beitt maltneskan mann stórfelldu ofbeldi í Reykholti árið 2024.

Innlent

Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í fram­leiðslu bætiefnis

Stjórnendur Hvals hf. er hættir að selja hvalkjöt til Japans og hyggjast þess í stað nýta kjötið til framleiðslu á járnbætiefni. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, segir járnskort útbreiddan og að þjóðir í Afríku ættu að veiða úr hvalastofnum undan ströndum álfunnar til að mæta vandanum.

Innlent

Við­reisn fjar­lægir bænina af Facebook: „Við viljum ekki særa fólk“

Færsla þar sem æðruleysisbæninni hafði verið breytt í svokallaða „krónuleysisbæn“ var birt í dag, sunnudaginn 16. ágúst, á Facebook-síðu Viðreisnar en henni var skömmu seinna eytt út. Framkvæmdastjóri Viðreisnar segir ástæðuna einfaldlega þá að viðbrögðin við færslunni hafi verið verri en búist var við en að það hafi aldrei verið ætlunin að særa neinn með þessari uppfærðu útgáfu af bæninni.

Innlent

Á sjötta tug björgunar­sveitarfólks kom að björguninni

Talsvert mikið viðbragð var á fjórða tímanum í dag þegar göngumaður slasaðist illa á fæti á stað þar sem virkilega erfitt var að komast að honum. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til aðstoðar björgunarsveitum og um klukkan hálf sex hafði maðurinn verið hífður upp. Hann var í kjölfarið fluttur á sjúkrahús í Reykjavík til aðhlynningar og athugunar.

Innlent

Ekki fleiri til­kynnt inn­brot síðan 2022

Lögreglan sem sér um varðsvæði eitt á höfuðborgarsvæðinu fékk tæplega áttatíu tilkynningar um innbrot í júlí. Ekki hafa fleiri innbrot verið tilkynnt til lögreglunnar fyrri hluta sumars síðan árið 2021.

Innlent