SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Hluti starfsmanna Samtaka atvinnulífsins heldur á morgun í árshátíðarferð til eyjunnar Hvar við strendur Króatíu, sama dag og frestur til þess að slíta kjarasamningum rennur út. Innlent 7.10.2026 15:53
Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Jafnréttisstofa segist hvorki hafa borið ábyrgð á rannsóknarhönnun né lokaskýrslu umdeildar rannsóknar sem unnin var af alþjóðlegu hugveitunni Equimundo að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar um hugmyndir norrænna karla um karlmennsku. Íslenskir fræðimenn hafa gagnrýnt rannsóknina og sagt að setja verði fyrirvara við niðurstöður hennar sem virtust benda til þess að hugmyndir íslenskra karla væru íhaldssamari en annarra norrænna karla. Innlent 7.10.2026 15:48
Bílvelta á Vesturlandsvegi Bíll valt á Vesturlandsvegi við Bauhaus síðdegis í dag í kjölfar áreksturs. Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir ekki mikil slys á fólki. Nokkrar umferðartafir voru á meðan bílunum var komið af veginum. Búið er að opna fyrir umferð. Innlent 7.10.2026 15:46
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Mjög erfitt er að halda verð- og gjaldskrárhækkunum innan verðbólgumarkmiðs þegar laun hækka meira, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann fagnar þó viðleitni opinberra aðila til að halda aftur af gjaldskrárhækkunum og telur ávinninginn geta skilað sér í lægri vaxtakostnaði. Innlent 7.10.2026 14:03
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Notkun þekktra laga eða radda flytjenda í pólitískum áróðri getur gefið almenningi til kynna að listamaður styðji viðkomandi málstað. Þetta sagði Sverrir Bergmann Magnússon á Alþingi í dag og hvatti stjórnmálaflokka og þingmenn til að tryggja nauðsynleg leyfi áður en kynningarefni er birt. Innlent 7.10.2026 13:58
Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Formaður Varðbergs segir Marco Rubio hafa staðfest varnarskuldbindingar Bandaríkjanna gagnvart Íslandi í heimsókn sinni til landsins, á sama tíma og mörg Evrópuríki dragi traust Bandaríkjamanna á varnarsamningum í efa. Hann telur að breytingar á NATO ættu ekki að hafa áhrif á Ísland. Innlent 7.10.2026 13:31
Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar, segir mikilvægt að foreldrar séu meðvitaðir um hversu auðvelt sé að sækja og misnota myndefni sem þeir deili af börnum sínum. Sem dæmi sé vitað að myndbönd af börnum að borða og dansa séu vistuð oftar en önnur myndbönd. Innlent 7.10.2026 13:31
Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Kennarasamband Íslands hefur boðað til blaðamannafundar þar sem sambandið mun kynna sína sýn og áherslur til bætingar menntakerfis Íslands. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 7.10.2026 13:31
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Það er skammsýni að leggja mikla áherslu á launahækkanir við núverandi aðstæður, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann segir lægri verðbólgu og lægri vexti vera það sem íslensk heimili þurfi helst á að halda og hafnar fullyrðingum um að laun hafi ekki áhrif á verðbólgu. Innlent 7.10.2026 13:04
Sex atvinnulausir um hvert laust starf Um sex atvinnulausir eru um hvert laust starf og hlutfallið hefur ekki verið svo hátt frá því í farsóttinni. Seðlabankastjóri viðurkennir hættu á að vöxtum verði haldið of háum of lengi og atvinnuleysi aukist meira en nauðsynlegt sé. Innlent 7.10.2026 12:51
Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Háskóli norðurslóða og Háskóli Íslands standa að opnu málþingi um áskoranir norðurslóða. Viðburðurinn fer fram í Háskóla Íslands í aðdraganda Hrinborðs norðurslóða. Hægt er að fylgjast með í beinni útsendingu hér á Vísi. Innlent 7.10.2026 12:32
Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Formaður Eflingar segir það glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu. Innlent 7.10.2026 12:09
Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Formaður Heimilis og skóla skorar á mennta- og barnamálaráðherra að endurvekja áform um að lengja skólaár grunnskólabarna. Rökfærslur formanns Kennarasambandsins eigi sér enga stoð. Þróun námsins á Íslandi ætti ekki að snúast einungis um kjarabaráttu kennara, sem bitni á námi barnanna. Innlent 7.10.2026 11:49
Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Formaður Eflingar segir glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu. Innlent 7.10.2026 11:41
Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Boðuð leigubremsa ríkisstjórnarinnar er „augljóslega mjög heimskuleg“, að mati Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra. Hann vonar að fallið verði frá henni og segir í samtali við fréttastofu að aðgerðin gæti gert illt verra. Innlent 7.10.2026 11:11
Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Harpa Söring Ragnarsdóttir hefur hýst fjölda au pair-stúlkna, til að mynda frá Filippseyjum, og segir aðstoð þeirra hafa gjörbreytt heimilislífinu til hins betra. Lítið sem ekkert eftirlit hafi verið með au pair, sem ætti að bæta í stað þess að banna komu filippseyskra stúlkna alveg. Innlent 7.10.2026 10:25
Fundur VR og SA hafinn Fulltrúar VR og Rafiðnaðarsambands Íslands eru mættir í húsakynni ríkissáttasemjara til að funda með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins, sem voru örlítið seinir. Innlent 7.10.2026 09:45
Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir að samkomulag Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar við Samtök atvinnulífsins, hafi ekki áhrif á viðræður VR. Hún vonast eftir lausnamiðuðu samtali þar sem fulltrúar SA hafi ítrekað látið sig hverfa þegar einhver lending næst. Innlent 7.10.2026 08:08
Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum „Þegar maður fór að skoða hann alls staðar þar sem hann var, og öll gögnin sem maður fær út úr einum síma, þá var ég þess fullviss um að hann væri „predator“,“ segir Leifur Halldórsson rannsóknarlögreglumaður um Thomas Møller Olsen, sem dæmdur var fyrir morðið á Birnu Brjánsdóttur. Innlent 7.10.2026 08:02
Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Félag sem leigir háskólanema stúdentaíbúð hefur verið gert að greiða leigjanda sínum 300 þúsund krónur eftir að átta bíldekk í eigu hans voru fjarlægð úr bílageymslu og þeim fargað. Innlent 7.10.2026 06:47
Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók einn fyrir líkamsárás í Kópavogi. Einn var fluttur á bráðamóttöku til aðhlynningar. Innlent 7.10.2026 06:22
Framlengja samninga út næsta ár Starfsgreinasamband Íslands, Efling, Samiðn og Byggiðn hafa gert samkomulag við Samtök atvinnulífsins um að framlengja kjarasamninga. Samkomulagið felur í sér að kjarasamningar halda gildi sínu út næsta ár og var skrifað undir það í kvöld. Innlent 6.10.2026 23:04
Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Margrét McArthur Friðriksdóttir segist undirbúa kæru til Mannréttindadómstóls Evrópu eftir að Landsréttur synjaði áfrýjunarbeiðni hennar í meiðyrðamáli. Innlent 6.10.2026 22:00
Segja boltann hjá stjórnvöldum Á meðan fulltrúar verkalýðsfélaga bíða eftir að Samtök atvinnulífsins mæti á sinn fund bíða fulltrúar SA eftir viðbrögðum frá stjórnvöldum. Framkvæmdastjóri SA segir deiluna stranda á nýju forsenduákvæði. Innlent 6.10.2026 21:27