Innlent

Segja boltann hjá stjórn­völdum

Á meðan fulltrúar verkalýðsfélaga bíða eftir að Samtök atvinnulífsins mæti á sinn fund bíða fulltrúar SA eftir viðbrögðum frá stjórnvöldum. Framkvæmdastjóri SA segir deiluna stranda á nýju forsenduákvæði.

Innlent

Ó­lík­legt að pestin berist til Ís­lands

Sóttvarnalæknir telur litlar líkur á því að lungnapest sem greindist í rannsóknarstofu í Rússlandi berist til Íslands enda smitist lungnapest ekki eins hratt og til dæmis inflúensa þó hún geti verið banvæn.

Innlent

Ó­þolin­mæði að fylla Læknavaktina

Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins biðlar til fólks að sýna sér mildi nú þegar haustpestirnar eru á fullu flugi. Hún segir óþolinmæði oft einkenna Íslendinga sem séu dugnaðarforkar sem ekki henti vel að vera veikir. Ýmislegt sé til ráða áður en mætt sé á Læknavaktina eða heilsugæsluna.

Innlent

Ekkert leyndar­mál að herinn sé önnum kafinn

Bandaríkjamenn drógu úr aðkomu sinni að varnaræfingu á Íslandi vegna þess að herinn var önnum kafinn annars staðar í heiminum, að sögn Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna. „Ég held að þetta sé ekki varanleg ákvörðun,“ sagði hann á blaðamannafundi í Reykjavík í dag.

Innlent

Greinir skýran vilja til meira sam­starfs

Ráðamenn vestanhafs hafa sýnt skýran vilja til að efla samstarf Bandaríkjanna og Íslands enn frekar. Þetta segist Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra hafa fundið vel eftir fundi hennar með Donald Trump, forseta, og Marco Rubio, utanríkisráðherra.

Innlent

Engar leyni­skyttur gættu Ru­bio

Um hundrað lögreglumenn komu að öryggisgæslu í tengslum við komu utanríkisráðherra Bandaríkjanna hingað til lands að sögn yfirlögregluþjóns öryggis- og greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Hann segir ákvörðun um vopnaborð liggja hjá íslenskum yfirvöldum og byggi á áhættumati hverju sinni.

Innlent

Hafnar sæl­gætis- og fæðingar­or­lofsmálum sem rökum fyrir bókun 35

Dómsmál um fæðingarorlof og skaðlegt sælgæti hafa verið notuð með villandi hætti til að rökstyðja innleiðingu bókunar 35, að mati Sigríðar Andersen, þingflokksformanns Miðflokksins. Hún sakaði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um hálfsannleik og blekkingar í umræðum á Alþingi í dag.

Innlent

Bíði og bíði eftir Bjarna

Það virðist vera langt á milli húsa í Borgartúninu, að sögn formanns VR, sem segist hafa beðið eftir því að fulltrúar Samtaka atvinnulífsins mæti til fundar í karphúsinu frá því klukkan 13.

Innlent

Hafi þegar tryggt fjár­mögnun varamótoranna

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að gert sé ráð fyrir kaupum á varamótorum í ferjuna Herjólf í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. Rekstrarfélag Herjólfs óskaði í gær eftir 65 milljónum króna til að geta keypt tvo varamótora í ferjuna.

Innlent

„Viljum ekki að það sé verið að leika sér að full­veldi Ís­lands“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagðist hafa fengið skýr svör á fundi sínum í morgun með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varðandi kortið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti sem sýndi Ísland sveipað bandaríska fánanum. Hún sagði metnað Rubio liggja í að ýta undir viðveru NATO á norðurslóðum.

Innlent

Rubio farinn af landi brott

Heimsókn Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna til Íslands er lokið en hann flaug af landi brott um hádegisbil í dag. Rubio heldur ferðalagi sínu um Evrópu áfram og mun á næstu dögum funda með ráðamönnum bæði í Portúgal og Grikklandi.

Innlent

Verði að gera fyrir­vara við rann­sókn um karl­mennsku

Doktor í félagstölfræði segir að gera verði fyrirvara við rannsókn alþjóðlegrar hugveitu á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um hugmyndir íslenskra karlmanna um karlmennsku. Hann setur stór spurningamerki við framkvæmd könnunarinnar, um sé að ræða vinnubrögð sem þekkist ekki í íslenskum félagsrannsóknum. Óheppilegt sé að Norræna ráðherranefndin hafi verið skrifuð fyrir skýrslunni.

Innlent

Einn í fram­boði til vara­for­manns enn sem komið er

Enginn hefur enn boðið sig fram gegn þingflokksformanni Samfylkingarinnar í varaformannskjöri sem fer fram á flokksstjórnarfundi um helgina. Fundurinn verður haldinn í Suðurnesjabæ þar sem meirihlutasamstarf Samfylkingar við Sjálfstæðisflokk sprakk í loft upp um helgina.

Innlent

Skora á borgina að bæta ekki við beygju­vasa

Samtök um bíllausan lífstíl leggjast á móti áformum meirihlutans og Miðflokks í umhverfis- og skipulagsráði um að bæta við hægribeygjuframhjáhlaupi þegar ekið er af Bæjarhálsi yfir á Höfðabakka til norðurs.

Innlent

Rubio: Ís­land í miðjunni

Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna lagði áherslu á sögulega vináttu Bandaríkjanna og Íslands á blaðamannafundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í Safnahúsinu. Lega Íslands skipti miklu máli fyrir öryggi á norðurslóðum og sagði ráðherrann mörg tækifæri fyrir frekara samstarfi á sviði öryggis- og efnahagsmála. Hann vildi ekki svara spurningu um samfélagsmiðlafærslur Bandaríkjaforseta og segir enga hernaðaruppbyggingu munu eiga sér stað á Íslandi án samþykkis Íslendinga.

Innlent

Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu

Rekstrarfélag Herjólfs segist verða að hætta við kaup á tveimur varamótorum fyrir ferjuna ef ríkið tryggir ekki fjármögnun þeirra. Samkvæmt félaginu hafa mótorarnir þegar verið pantaðir og þrjátíu prósent kaupverðsins greidd en það segist ekki eiga fyrir eftirstöðvunum.

Innlent

Af­gerandi niður­staða um að slíta kjara­samningum

Stjórn VR og samninganefnd LÍV hafa fengið óskorðað umboð til þess að segja upp kjarasamningum. Formaður VR segir afstöðuna afgerandi. Forsvarsmenn VR funda með Samtökum atvinnulífsins á morgun og vonast til að lausn finnist í málinu. 

Innlent