Indland

Indland

Höfuðborg: Nýja Delí. Mannfjöldi: 1.433,0 milljónir (2025). Flatarmál: 3.287.263 ferkílómetrar.


Fréttamynd

„Það væri ekki hægt að skrifa þetta hand­rit“

Þegar hinni indversku Ambiku Sharma bárust sem barni bréf frá íslensku styrktarforeldri þar sem hún bjó í barnaþorpi á Indlandi varð hún heilluð af ljósmyndum af norðurljósum sem fylgdu bréfunum. Það setti því punktinn yfir i-ið eftir tveggja vikna Íslandsferðalag þegar hún fékk loksins að hitta bæði styrktarforeldrið sitt og sjá norðurljós á síðasta degi ferðarinnar.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Grétu af gleði þegar þær hittust loksins

Indverska konan Ambika Sharma, sem ólst upp í SOS-barnaþorpi, hitti loksins Guð­rúnu Haf­dísi Karls­dótt­ur 33 árum eftir að Hafdís gerðist styrktarforeldri hennar. Ambika ætlaði að koma til Íslands í fyrra en fékk ekki vegabréfsáritun. Tárin féllu í stríðum straumum þegar þær hittust í Hamraborginni í gær.

Lífið
Fréttamynd

Ru­bio von­góður um vopna­hlé

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að samkomulag við Íran gæti náðst í dag, mánudag. Hann segir samninganefndir landanna tveggja komnar með eitthvað bitastætt á samningaborðið en vinna sé þó enn yfirstandandi. Rubio er þessa stundina staddur í opinberri heimsókn á Indlandi.

Erlent
Fréttamynd

Ind­verski dansinn dunaði á Hilton

Dansgleðin tók yfir á Vox klúbbi Hilton hótelsins á Suðurlandsbraut á dögunum þegar indverska sendiráðið og Indverska félagið á Íslandi stóðu fyrir einkaleiksdansi. 

Lífið
Fréttamynd

Opnaði ættleiðingarskjölin í fyrsta sinn og fann setningu sem breytti öllu

Sigrún Arna Brynjarsdóttir hafði alltaf vitað að hún hefði verið ættleidd frá Indlandi. Hún vissi að hún hefði verið skilin eftir sem nýfætt barn og að hún hefði komið til Íslands sex mánaða gömul. Samt var það allt annað að sjá eigin sögu svart á hvítu þegar hún opnaði ættleiðingargögnin sín í fyrsta sinn, tæplega fjörutíu árum síðar.

Lífið
Fréttamynd

„Að vera ætt­leidd er ein stærsta gjöf sem ég og fjöl­skyldan mín höfum fengið“

Í rúma tvo áratugi lá uppruni Helenu Óskar Padmavati Hilmarsdóttur að mestu í skjölum, ljósmyndum og frásögnum annarra. Hún var ættleidd til Íslands frá Indlandi árið 2001 og ólst upp á Akureyri. Með árunum jókst áhugi hennar á uppruna sínum og á seinasta ári fór hún í fyrsta sinn til Indlands ásamt fjölskyldu sinni, þar sem þau heimsóttu meðal annars barnaheimilið þar sem Helena dvaldi fyrstu mánuði ævi sinnar. Ferðin átti eftir að hafa djúpstæð áhrif á Helenu.

Lífið
Fréttamynd

Lækkar tolla á Ind­land

Bandaríkin og Indland hafa komist að viðskiptasamkomulagi. Þeir fyrrnefndu hafa samþykkt að lækka töluvert tolla sína á indverskar vörur gegn því að Indland hætti að eiga í viðskiptum við Rússland.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

„Móðir allra samninga“

Nýr fríverslunarsamningur á milli Evrópusambandsins og Indlands er sagður munu leiða til þess að útflutningur aðildarríkjanna til Indlands mun tvöfaldast fyrir árið 2032. Næstum allir tollar verða afnumdir eða lækkaðir verulega, sem mun spara evrópskum fyrirtækjum fjóra milljarða evra.

Erlent
Fréttamynd

Evrópu­sam­bandið og Ind­land ganga frá fríverslunarsamningi

Fulltrúar Evrópusambandsins og Indlands hafa lagt lokahönd á fríverslunarsamning sem hefur verið í smíðum, með hléum, í nærri tvo áratugi. Báðir aðilar eru sagðir freista þess að styrkja tengslin sín á milli og við önnur ríki heims, meðal annars vegna óútreiknanlegrar framgöngu Bandaríkjanna á alþjóðasviðinu.

Erlent
Fréttamynd

Þegar engin önnur leið er fær

Tæknifrjóvgun er ekki lausn fyrir alla. Fyrir hluta fólks endar sú leið án árangurs þrátt fyrir langvarandi meðferðir sem geta farið fram bæði hérlendis og erlendis.

Skoðun
Fréttamynd

Ó­vissa í Ind­landi lætur City selja

City Football Group, sem eiga Manchester City og fleiri félög, hafa losað sig við eignarhlut sinn í Mumbai City FC vegna mikillar óvissa í indverska boltanum. Deildarkeppnin þar í landi hefur verið stopp síðan í sumar.

Fótbolti
Fréttamynd

„Ég bið Lionel Messi inni­lega af­sökunar“

Lionel Messi er mættur til Indlands en ferðin byrjaði ekki vel. Stutt stopp á leikvangi, sem áhorfendur höfðu borgað stórar upphæðir fyrir miða sína, fór mjög illa í marga og þeir hinir sömu létu reiði sína bitna á leikvanginum.

Fótbolti
Fréttamynd

Loft­mengun í Delí langt yfir öryggisviðmiðum

Loftmengun í Delí á Indlandi mælist nú 30 sinnum meiri en öryggisviðmið Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Yfirvöld hafa fyrirskipað skólum að taka um fjarkennslu og þá hefur ýmis starfsemi verið takmörkuð.

Erlent
Fréttamynd

Fjöldi komst ekki út og brann lifandi

Minnst 20 fórust þegar eldur kviknaði í farþegarútu í norðurhluta Indlands í gær. Talið er að 35 til 50 farþegar hafi verið um borð þegar ökumaður rútunnar hóf för milli bæjanna Jaisalmer og Jodhpur í Rajasthan-fylki.

Erlent
Fréttamynd

Dómari skikkar lækna til að vanda skriftina

„Á tímum þar sem tækni og tölvur eru auðveldlega aðgengilegar, er sláandi að læknar hjá hinu opinbera séu enn að handskrifa lyfjaávísanir sem enginn getur skilið, nema einstaka lyfjafræðingur.“

Erlent