Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Karl Th. Birgis­son borinn til grafar

Ritstjórinn Karl Th. Birgisson var borinn til grafar í dag, þriðjudaginn 29. september, en útförin var gerð frá Hallgrímskirkju og var það séra Davíð Þór Jónsson sem söng yfir hinum látna.

Sam­tökin séu ekki í bar­áttu gegn einkabílnum

Nýr formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl segir samtökin alls ekki vilja þrengja að gegn einkabílnum heldur sé tilgangur samtakanna að gera það auðveldara að velja að vera bíllaus. Sumir gætu sleppt því að kaupa fleiri bíla á heimilið og skoðað það frekar að kaupa gott hjól í staðinn.

Fundu elds­neyti en engin sprengi­efni í bílunum

Leit í þremur sendiferðabílum sem voru nærri RAF Fairford-herstöðinni í Englandi er lokið en þar fannst nokkuð magn af bensíni en engin sprengiefni eins og talið var. Fimm breskum ríkisborgurum var í gær sleppt úr haldi en þeir höfðu verið handteknir vegna gruns um skipulagningu hryðjuverks og neyðarástandi lýst yfir við herstöðina í kjölfarið.

Um­ferðar­slys við Nýbýlaveg í Kópa­vogi

Tveir fólksbílar skullu saman við Nýbýlaveg í Kópavogi á fimmta tímanum í dag en sjúkrabílar voru sendir á vettvang til að athuga með einstaklinga sem voru í bílunum þegar slysið varð.

Danskur stór­leikari þakk­látur á Ís­landi

Dansk-írakski leikarinn Dar Salim er staddur á landinu og virðist njóta þess vel miðað við færslu hans á samfélagsmiðlum. Hann segist þakklátur fyrir frídag og virðist því líka vera hér við vinnu miðað við færsluna.

Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengda­for­eldrum sínum

Yfirmaður leikjaupplifunar hjá bandaríska fyrirtækinu The New York Times var skotinn til bana í Kaliforníu en tengdaforeldrar hans eru grunaðir um morðið. Þau voru handtekin nærri vettvangi morðsins örfáum mínútum eftir að vitni heyrðu skothvelli og sáu mann falla til jarðar.

Vinnu­vél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú

Lokað var fyrir umferð á Kringlumýrarbraut í suður eftir að vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrúna í kvöld. Engn slys urðu á fólki en lögregla og starfsmenn Vegagerðarinnar skoða vettvang.

Tals­vert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir á­hrifum

Alls voru tuttugu og fjórir ökumenn stöðvaðir í akstri á höfuðborgarsvæðinu um síðastliða helgi sem reyndust vera undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Þar af voru tvær konur og tuttugu og tveir karlar en þrír þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og þrír aldrei öðlast ökuréttindi.

Hlýtur ríf­lega sjö­tíu svipu­högg fyrir að koma fram án höfuðslæðu

Þekkt söngkona í Íran hefur verið fundin sek um birtingu „ruddalegs og ósæmilegs efnis“ og mun hún hljóta sjötíu og fjögur svipuhögg sem refsingu. Efnið var beint streymi frá tónleikum hennar í desember 2024 þar sem hún kom fram án þess að klæðast hijab og í ermalausum kjól. Henni verður einnig gert að yfirgefa heimaland sitt í tvö ár.

Sjá meira