Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan „Maður verður að treysta fólkinu í kringum sig, öðrum leikurum, og mér líkar sá hluti starfsins, að geta horft í augun á einhverjum og veist svo að þeim, á öruggan hátt,“ segir Ólafur Darri í nýlegu viðtali en hann fer með eitt aðalhlutverkið í spennuþáttunum The Tourist. Þættirnir eru framleiddir fyrir BBC og HBO Max en á móti honum leikur meðal annars írski leikarinn Jamie Dornan. 16.8.2026 19:01
Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Tveir létust og mörg hundruð manns voru flutt á brott af grísku eyjunni Salamis sem er nærri höfuðborginni Aþenu en tveir gróðureldar kviknuðu „nánast samtímis“ eða um klukkan 14:40 á staðartíma og svo tuttugu mínútum seinna. Fyrri eldurinn kviknaði á suðurströnd eyjunnar og að sögn slökkviliðsyfirvalda í Grikklandi breiddist hann gríðarlega hratt út vegna hvassviðris. 16.8.2026 18:14
Forystumenn láti stór orð falla sér og sínum málstað til framdráttar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra telur að deilur sem upp komi í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu sem þjóðin standi frammi fyrir þann 29. ágúst séu ekki af því tagi að landsmenn láti tilfinningarnar bera sig ofurliði. Þvert á móti sé tilfinningahiti fólks almennt minni en gengur og gerist í kosningum. 16.8.2026 17:43
Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Almyrkvinn 12. ágúst 2026 gengur yfir vestasta og þéttbýlasta svæði landsins, yfir Vestfirði, Snæfellsnes, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga. Hann nemur fyrst land á Íslandi við Straumnesvita á Hornströndum sautján mínútur í sex að kvöld til en þar stendur hann yfir í tæpa eina og hálfa mínútu. Myrkvinn stendur lengst yfir við Látrabjarg eða í tvær mínútur og þrettán sekúndur. 12.8.2026 11:30
Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Almyrkvi á sólu mun ganga yfir Norðurslóðir þann 12. ágúst en liðin eru 72 ár síðan síðast sást til almyrkva frá Íslandi og hefur mikið kapp verið lagt á að miðvikudagurinn gangi sem best fyrir sig. Eitt sem er þó úr okkar höndum er veðrið en Stjörnu-Sævar segir skýjaðan almyrkva vera stórkostlegan þrátt fyrir að það sé þá ekki hægt að fylgjast með tunglinu ganga fyrir sólina. Þá séu gæludýr í engri hættu og grillkjöt geti með engu móti orðið óætt af völdum sólargeisla. 10.8.2026 20:32
Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Það er tiltölulega fyrirsjáanlegt hver viðbrögð mannfólks verða þann 12. ágúst þegar tunglið hylur sólina algjörlega og við upplifum örstutta nótt. Sumir munu reka upp stór augu, aðrir skella upp úr og einhverjir munu án efa fella tár. Hvernig dýr munu bregðast við er hins vegar ekki eins augljóst. 10.8.2026 12:54
Perez Hilton þarf að fara í aðgerð eftir sjálfsskaða í beinu streymi á TikTok Fjölskylda stjörnubloggarans Perez Hilton hefur greint frá því að hann þurfi að gangast undir aðgerð eftir að hafa „misst mikið blóð“ í beinni útsendingu þann 4. ágúst þar sem hann skaðaði sjálfan sig í beinni á samfélagsmiðlinum TikTok. 9.8.2026 15:12
Þjóðin þekki ekki annað en öryggisvernd frá Bandaríkjunum Bogi Ágústsson telur marga landsmenn vera að hluta til í afneitun varðandi breyttan heim og að sú vernd sem við höfum hlotið frá Bandaríkjunum blindi fólk fyrir því að Evrópa gæti verið valkostur. Neikvæð niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst myndi þýða að ekkert verði af framhaldi aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fóru árin 2009-2013. 9.8.2026 14:10
Ljónið, Karlsvagninn og reikistjörnur gætu stolið senunni þann 12. ágúst Þann 12. ágúst næstkomandi munu augu allra landsmanna beinast að himni, eða í það minnsta flestra. Þegar næturmyrkur skellur á löngu fyrir sólsetur gæti fólk komið auga á í það minnsta fjórar reikistjörnur og næstum því eins mörg stjörnumerki. Einhverjir munu eflaust freistast til að slíta augun af almyrkvanum til að virða eitt eða fleiri þeirra fyrir sér. 9.8.2026 11:33
„Svolítið sérstakt“ að næturvaktin hafi sinnt fleiri útköllum Það var margt um manninn og mikið um dýrðir síðasta sólarhringinn á höfuðborgarsvæðinu en slökkviliðsfólk hafði þar af leiðandi í nægu að snúast. Vanalega er slökkviliðið ræst út talsvert oftar á dagvöktum en næturvöktum en því var öfugt farið í þetta skiptið. 9.8.2026 11:22