Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Forstjóri Icelandia, sem rekur Flugrútuna, gagnrýnir að ríkið greiði rúma milljón króna á viku fyrir að taka við farþegum á nýrri stoppustöð við Keflavíkurflugvöll. Hann segir það auka samkeppni ríkisins við einkarekin ferðaþjónustufyrirtæki. 7.10.2026 13:17
Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Formaður Eflingar segir glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu. 7.10.2026 11:41
Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Christopher Saunders, biskup í Ástralíu, hefur verið dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir brot gegn tveimur ungum strákum af frumbyggjaættum. 7.10.2026 08:49
Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir að samkomulag Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar við Samtök atvinnulífsins, hafi ekki áhrif á viðræður VR. Hún vonast eftir lausnamiðuðu samtali þar sem fulltrúar SA hafi ítrekað látið sig hverfa þegar einhver lending næst. 7.10.2026 08:08
Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Utanríkisráðherra Bandaríkjanna er í opinberri heimsókn á Íslandi og fundaði með utanríkisráðherra og forsætisráðherra. 6.10.2026 11:43
Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Samtök um bíllausan lífstíl leggjast á móti áformum meirihlutans og Miðflokks í umhverfis- og skipulagsráði um að bæta við hægribeygjuframhjáhlaupi þegar ekið er af Bæjarhálsi yfir á Höfðabakka til norðurs. 6.10.2026 11:39
Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Quebecbúaflokkurinn (Parti Québécois) vann fylkiskosningarnar í Quebec-fylki í Kanada í gær. Flokkurinn vill að fylkið lýsi yfir sjálfstæði frá Kanada og hefur leiðtogi flokksins, sem verður jafnframt að öllum líkindum næsti fylkisstjóri Quebec, lofað atkvæðagreiðslu um málið á næstunni. 6.10.2026 07:18
Ögurstund í kjarasamningamálum Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif. 5.10.2026 11:52
Vill breyta umdeildum gatnamótum Til skoðunar er að breyta á ný gatnamótum sem gerðar voru umdeildar breytingar á í fyrra. Oddviti Miðflokksins gekk til liðs við meirihlutann í málinu og vonast til að framkvæmdir hefjist í vor. 5.10.2026 10:38
Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Kona á fertugsaldri var í gær handtekin í Bandaríkjunum, grunuð um njósnir fyrir kínverska ríkið. Á hún að hafa sent myndir af bílum og húsum sem fjölskylda forseta Taívan notaðist við. 5.10.2026 06:33