Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum Búist er við talsverðum töfum á umferð um gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar næstu vikur en framkvæmdir hefjast þar eftir helgi. Verkefnastjóri hjá Vegagerðinni hvetur fólk til að kynna sér hjáleiðir. 21.8.2026 21:01
Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Möguleg Evrópusambandsaðild var rædd frá sjónarhorni ungs fólks í Pallborðinu á Vísi í dag. Þátttakendur minntust meðal annars á hvað myndi gerast yrði íslenskur efnahagur fyrir áfalli og stöðu landbúnaðar. 20.8.2026 22:01
Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Ungt fólk verður í brennideplinum í Pallborðinu á Vísi í dag. Húsnæðismál, atvinnuleysi, efnahagsmál og fleiri mál verða rædd með það að markmiði að ungt fólk sé einhverju nær um hvað það á að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi. 20.8.2026 12:21
Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Annar dagur aðalmeðferðar í Reykholtsmálinu svokallaða fór fram í dag. Þrír mættu fyrir dómara og við förum yfir allt það helsta í beinni útsendingu. 18.8.2026 18:12
Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir fundarferð sína um landið í aðdraganda þjóðaratkvæðis ganga vel og skapa tækifæri fyrir kjósendur að hittast, ræða málin og heyra skoðanir hver annars. Hún tekur fyrir þær háu tölur sem nefndar hafa verið um kostnað Íslands við aðild og segir upphæðina í raun mun lægri. 18.8.2026 12:18
Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Skiptar skoðanir eru á tilfærslu Vínbúðarinnar á Akureyri, ári eftir að hún var gerð. Kaupmenn segja miðbæinn enn lifandi en afhendingarstaður netverslunar með áfengi var opnaður í húsnæðinu þar sem vínbúðin var áður. 17.8.2026 23:21
Hljóðupptökur, ný vínbúð og færri sturtuðu niður yfir almyrkva Aðalmeðferð frelsissviptingarmáls sem oftast er kennt við Reykholt hófst við Héraðsdóm Suðurlands í dag. Einn hinna ákærðu mætti fyrir dóm í dag og spilaðar voru hljóðupptökur úr farsíma hans. Í þeim mátti heyra hann ræða við ýmsa um meinta frelsissviptingu og leggja á ráðin með unnustu sinni og yngri bróður. 17.8.2026 18:11
„Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Sumarball fyrir menntaskólanema gekk eins í sögu segja skipuleggjendur. Sex hundruð ungmenni skemmtu sér undir berum himni án allra vímuefna. 17.8.2026 14:25
Ákafir þátttakendur beggja fylkinga rugli fólk viljandi í ríminu Erfitt er fyrir kjósendur að átta sig á því hvað þeir eru að greiða atkvæði um þann 29. ágúst næstkomandi vegna upplýsingamengunar frá báðum fylkingum segir stjórnmálafræðingur. Þær tileinki sér báðar ákveðna anga popúlisma. 17.8.2026 12:02
Gerir upp hús hannað af Guðjóni Samúelssyni Hús hannað af Guðjóni Samúelssyni byggt þar sem talið er að Helgi magri hafi haft vetrarsetu í Eyjafjarðarsveit fær nú mikla yfirhalningu. Eigandinn segir mikilvægt að varðveita gömul hús. 16.8.2026 22:04