Noregur

Noregur

Höfuðborg: Ósló. Mannfjöldi: 5,6 milljónir (2025). Flatarmál: 385.207 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Rúm­lega hundrað flug­ferðum af­lýst og langar bið­raðir

Alls hefur 135 flugferðum verið aflýst í Noregi í morgun vegna verkfalls flugumferðarstjóra. Óslóarflugvelli var lokað í um fimm klukkustundir í morgun en hefur verið opnaður að nýju. Ætlast er til þess að lokunin muni hafa veruleg áhrif á flugumferð það sem eftir er af degi og eru sagðar langar biðraðir á vellinum.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Báðar þyrlur og flug­vél gæslunnar á loft sam­tímis

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur sinnt fjórum sjúkraflugum það sem af er degi en þar af var eitt á Flateyri í Breiðafirði og eitt á Patreksfirði. Eftirlitsflugvélin TF-SIF hefur komið að útköllum þar sem farið var djúpt á haf út en á tímabili var nauðsynlegt að forgangsraða verkefnum þar sem þau bárust nánast samtímis.

Innlent
Fréttamynd

Hvað er í gangi á Sval­barða?

Svalbarði er svo norðarlega að hann eru nær Norðurpólnum en nokkru öðru byggðu bóli í Evrópu. Óheimilt er að jarða fólk vegna sífrera í jörðu, konur geta ekki fætt börn vegna skorts á heilbrigðisþjónustu og utan bæjarmarka er nauðsynlegt að bera riffil vegna ísbjarna. Þessi afskekkti og fámenni eyjaklasi hefur á síðustu árum orðið að miðju ýmissa samsæriskenninga.

Lífið
Fréttamynd

Yfir hundrað í­búðir gjörskemmdar

Slökkviliðið í Drammen hefur náð tökum á eldinum sem geisað hefur í íbúðahverfinu Krokstadelva í útjaðri borgarinnar síðan um miðjan gærdaginn. Fjögur hundruð manns hefur verið gert að rýma svæðið og fleiri en hundrað íbúðir eru gjörskemmdar.

Erlent
Fréttamynd

Segir erfitt að horfa upp á ná­granna missa al­eiguna

Fjöldi íbúða og heimila sem tapast hafa í stórbruna í Drammen í Noregi er kominn yfir hundrað. Arnar Jakobsson, sem búsettur hefur verið í Noregi síðastliðin tuttugu og sex ár, segist hafa mætt lögreglu- og slökkviliðsbíl um klukkan 15:35 síðdegis að staðartíma. „Þá leit ég upp í brekku og sá alelda hús,“ segir Arnar.

Erlent
Fréttamynd

Rúm­lega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen

Rúmlega fimmtíu heimili og íbúðir eru brunnin til grunna í bænum Drammen, sem staðsettur er tæplega 50 kílómetra suðvestur af Ósló. Samkvæmt yfirlýsingu slökkviliðs hefur enn ekki verið náð stjórn á brunanum.

Erlent
Fréttamynd

Frá leik­gleði til af­reka

Íslenskar íþróttir hafa leikið stórt hlutverk í sögu og sjálfsmynd okkar þjóðar. Á grunni öflugs sjálfboðaliðastarfs hafa þær skapað vettvang fyrir lýðheilsu, félagslega þátttöku og afrek á heimsmælikvarða.

Skoðun
Fréttamynd

Haaland hunsaði Holland

Hollywood-stjarnan Tom Holland játaði að það væri auðmýkjandi reynsla að fótboltastjarnan Erling Haaland skyldi hunsa skilaboð hans. Holland sá Haaland á formúlunni í júní og bauð Norðmanninum út að borða en fékk ekkert svar. Haaland viðurkenndi að hafa hunsað skilaboðin því hann vissi ekkert hver Holland væri.

Lífið
Fréttamynd

Mette-Marit út­skrifuð af sjúkra­húsi

Mette-Marit, krónprinsessa Noregs, hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi eftir að hún gekkst undir lungnaígræðslu í síðasta mánuði. Hún tekur sér frí frá konunglegum skyldum í nokkurn tíma til viðbótar.

Erlent