Innlent

Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing

Birgir Olgeirsson skrifar
Vilhjálmur Birgisson, Sólveig Anna Jónsdóttir og Halla Gunnarsdóttir hafa tekist á um kjarasamninga fyrir þing ASÍ. Katrín Jakobsdóttir staðfestir að rætt hafi verið við hana um forsetaframboð en hún ætlar ekki fram.
Vilhjálmur Birgisson, Sólveig Anna Jónsdóttir og Halla Gunnarsdóttir hafa tekist á um kjarasamninga fyrir þing ASÍ. Katrín Jakobsdóttir staðfestir að rætt hafi verið við hana um forsetaframboð en hún ætlar ekki fram. Vísir

Rætt hefur verið við Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, um að bjóða sig fram til forseta Alþýðusambands Íslands. Hún staðfestir að hún ætli ekki fram. Nýr forseti verður kjörinn á þingi sambandsins í næstu viku.

„Ég get staðfest að ég heyrði í nokkrum félögum úr verkalýðshreyfingunni um þetta og sömuleiðis að ég er ekki að fara fram,“ segir Katrín í skriflegu svari við fyrirspurn Vísis.

47. þing ASÍ verður haldið á Hilton Reykjavík dagana 14. til 16. október, frá miðvikudegi til föstudags í næstu viku. Kosningar eru á dagskrá síðasta þingdaginn. Auk forseta verða kjörnir þrír varaforsetar og ellefu aðrir aðalmenn í miðstjórn til tveggja ára, samkvæmt lögum sambandsins.

Finnbjörn A. Hermannsson, fráfarandi forseti, gefur ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Hann tók við vorið 2023 og var áður formaður Samiðnar og Byggiðnar.

Hingað til hafa tveir tilkynnt forsetaframboð. Arnaldur Grétarsson, mannfræðingur og samfélagsmiðla- og markaðssérfræðingur sem hefur starfað fyrir ASÍ, og  Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU, stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum. Georg hefur sérstaklega lagt áherslu á samstöðu innan hreyfingarinnar.

Samið við atvinnurekendur en ósættið situr eftir

Þingið verður haldið í skugga harðra deilna innan verkalýðshreyfingarinnar. Þær héldu áfram í gær þótt samkomulag næðist um að kjarasamningar héldu gildi sínu.

Samkomulag VR og Samtaka atvinnulífsins var handsalað rétt fyrir klukkan fjögur í gær, áður en uppsagnarfrestur rann út. Nokkrum klukkustundum síðar sakaði Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, um að hafa staðið fyrir leikriti sem hefði ekki skilað betri niðurstöðu en Breiðfylkingin hafði áður fengið.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagðist telja að Alþýðusambandið hefði eiginlega aldrei farið jafn klofið inn á þing. Hún sagði jafnframt í viðtali við RÚV í gærkvöldi að hún íhugaði alvarlega stöðu Eflingar innan ASÍ.

Ólíkt mat á því hvað samningar þurfa að skila

Nýjustu átökin snúast um viðbrögð við því að verðbólga fór yfir viðmið langtímakjarasamninganna frá 2024. Félögunum gafst því færi á að segja samningunum upp.

Breiðfylkingin, SGS, Efling, Samiðn og Byggiðn, samdi við SA á þriðjudagskvöld. Samningstíminn styttist um einn mánuð en umsamdar launahækkanir halda sér. SGS lagði áherslu á um fimm prósenta hækkun launataxta um áramót og að lægstu taxtar færu þá yfir hálfa milljón króna.

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir afskipti Sólveigar Önnu af innri málum félagsins vera með ólíkindum. Hún segir VR verða að gæta hagsmuna eigin félagsfólks.Vísir/Anton Brink

Sólveig Anna sagði á miðvikudag að glapræði væri að hafna væntanlegri launahækkun. Aðgerðir stjórnvalda og sveitarfélaga, ásamt hækkuninni, væru nægileg ástæða til að halda samningunum. Hún taldi ekki skynsamlegt að fara í átök á vinnumarkaði við þessar aðstæður.

Halla mat stöðuna öðruvísi. Hún sagði niðurstöðu sem Breiðfylkingin teldi ásættanlega fyrir sitt fólk ekki leysa vanda annarra hópa. Stórir hópar innan VR og samstarfsfélaganna hefðu orðið fyrir rýrnun kaupmáttar og félögin gætu ekki sætt sig við að hún héldi áfram. Hún gagnrýndi jafnframt að Breiðfylkingin hefði skrifað undir áður en viðræðum annarra lauk. Þessi ólíku sjónarmið komu fram í sama viðtali.

Stjórn VR samþykkti að segja samningunum upp ef ekki næðist ásættanleg niðurstaða. VR, LÍV og Fagfélögin héldu þeim möguleika opnum fram á síðustu mínútu í gær.

Deilt um árangurinn eftir undirritun

Samkomulag VR heimilar að stytta samningstímann um allt að tvo mánuði ef ársverðbólga í október 2027 verður yfir 4,3 prósentum eða verðbólga frá apríl til október verður yfir 3,8 prósentum, reiknuð til árs. Við matið verður meðal annars tekið tillit til þess hvort innflutt verðbólga skýri frávikið.

Verði samningsaðilar sammála um að innflutt verðbólga sé meginástæðan getur styttingin orðið minni eða engin. Náist ekki samkomulag falla samningarnir úr gildi 30. nóvember 2027.

Breiðfylkingin tryggði sér hins vegar eins mánaðar styttingu óháð verðbólgu, þannig að samningarnir renna út 31. desember 2027. Vilhjálmur lagði áherslu á þennan mun í gagnrýni sinni í gærkvöldi. Hann kallaði framvinduna hjá VR leikrit og fjölmiðlasirkus og hafnaði því að félagið hefði náð meiri árangri. Sambærilegt tilboð um skilyrta styttingu hefði áður staðið til boða.

Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands, hafnaði því að VR hefði náð betri niðurstöðu en Breiðfylkingin og kallaði framvindu viðræðnanna leikrit og fjölmiðlasirkus.Vísir/Vilhem

Stytting kjarasamninganna getur þýtt að næstu launahækkanir komi fyrr. Félögin verða fyrr laus undan gildandi samningum og geta þá beitt verkfalli til að knýja á um ný kjör, að uppfylltum skilyrðum. Styttingin tryggir þó enga hækkun, því hún ræðst af niðurstöðu næstu samninga. Breiðfylkingin hefur tryggt sér að samningarnir renni út einum mánuði fyrr, en samningar VR geta runnið út allt að tveimur mánuðum fyrr ef tiltekin verðbólguskilyrði verða uppfyllt. Deilt er því um hvort öruggur einn mánuður sé betri niðurstaða en mögulegir tveir.

Sólveig Anna hélt því einnig fram að aðgerðapakki stjórnvalda hefði þegar legið fyrir á þriðjudag. Halla hafnaði þeirri lýsingu í viðtali við Vísi í dag. Hún sagði útfærslu stuðnings við skuldsett heimili hafa breyst og nýtt forsenduákvæði fengist inn. Afskipti Sólveigar af innri málum VR væru með ólíkindum og félögin yrðu að gæta hagsmuna eigin félagsfólks.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði í dag að báðir formenn hefðu rétt fyrir sér að hluta. Hugmyndirnar hefðu legið fyrir fyrr í vikunni en útfærslan verið kláruð í gær.

VR klauf sig frá Breiðfylkingunni

Ágreiningurinn um forsenduákvæði varð ekki til í þessari viku. VR dró sig úr Breiðfylkingunni í febrúar 2024, þegar Ragnar Þór Ingólfsson var formaður félagsins. Hann sagði ekki hafa náðst samkomulag innan hópsins um hvernig verja ætti félagsfólk ef forsendur langtímasamninga brygðust.

Ragnar Þór Ingólfsson var formaður VR þegar félagið dró sig úr Breiðfylkingunni í febrúar 2024. VR vildi sterkari ákvæði til að verja félagsfólk ef verðbólga og vextir lækkuðu ekki eins og vænst væri.Vísir/Vilhelm

VR vildi skýrari og öflugri ákvæði um endurskoðun samninganna ef verðbólga og vextir lækkuðu ekki eins og vænst væri. Halla sat þá í viðræðunefnd VR, eins og fram kemur í tilkynningu félagsins frá febrúar 2024. Hún tók við formennsku 3. desember sama ár, eftir að Ragnar Þór var kjörinn á Alþingi.

Sá ágreiningur sem klauf samstarfið við gerð samninganna hefur því aftur komið fram þegar reyndi á forsendur þeirra.

Deildu um samningana og kjör láglaunafólks

Halla og Sólveig hafa einnig tekist opinberlega á um árangur samninganna frá 2024.

Í pistli við árslok 2024 sagði Halla að launahækkanirnar hefðu verið svo hóflegar að þær gætu auðveldlega orðið að raunlaunalækkunum í verðbólgu. Fyrirheit um lægri vexti hefðu ekki gengið eftir og launafólk bæri bæði kostnað af verðhækkunum og háum vöxtum.

Sólveig Anna svaraði með gagnrýni á Höllu og samninganefnd VR. Hún sagði Höllu horfa fram hjá árangri Breiðfylkingarinnar við að bæta kjör ræstingafólks, einkum aðfluttra kvenna. Hún gagnrýndi jafnframt aðferðir VR í launadeilu starfsfólks á Keflavíkurflugvelli og taldi félagið hafa farið fram án nægilega skýrrar áætlunar.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði Höllu Gunnarsdóttur horfa fram hjá árangri Breiðfylkingarinnar við að bæta kjör ræstingafólks, einkum aðfluttra kvenna, í samningunum frá 2024.Vísir/Vilhelm

Halla hafði í pistlinum lýst verkbannshótun Samtaka atvinnulífsins gegn um 25 þúsund félagsmönnum VR, vegna deilna um kjör um 170 starfsmanna Icelandair, sem atlögu að réttindum launafólks. Hún gagnrýndi að svo víðtækri aðgerð hefði verið hótað vegna kröfu þessa hóps um leiðréttingu kjara og afnám tvískiptra vakta.

Þær hafa líka verið ósammála um málefni erlends launafólks. Í ágúst 2025 gagnrýndi Sólveig afstöðu Höllu til hertra skilyrða fyrir dvalarleyfum. Halla hafði bent á mikilvægi erlends starfsfólks fyrir íslenskt samfélag. Sólveig studdi hert skilyrði og sagði fyrirkomulagið hafa gert atvinnurekendum kleift að misnota stöðu fólks utan Evrópska efnahagssvæðisins.

Launadeila varð að persónulegum átökum

Í apríl á þessu ári færðust deilurnar yfir á launakjör Höllu. Sólveig gagnrýndi hækkun launa formanns VR og hélt því fram að ASÍ væri látið niðurgreiða þau. Ágreiningurinn laut meðal annars að því að greiðslur fyrir varaforsetaembætti Höllu hjá ASÍ væru taldar hluti heildarkjara hennar hjá VR.

Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins. Samkomulag náðist um að kjarasamningar héldu gildi sínu, en innan verkalýðshreyfingarinnar er áfram deilt um árangurinn.Vísir/Anton Brink

Halla hafnaði því að fyrirkomulagið hefði fjárhagsleg áhrif á ASÍ. Hún sagði stjórn VR hafa aukið gagnsæi um heildarkjör formanns og laun sín vera lægri en laun forvera hennar. Gagnrýni Sólveigar væri hluti af persónulegri herferð gegn henni og félaginu.

„Mér líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli,“ skrifaði Halla. Hún sagði Sólveigu vilja að önnur félög legðu hagsmuni síns félagsfólks til hliðar og fylgdu áherslum hennar. Sólveig svaraði daginn eftir og kallaði Höllu ómerkilegan popúlista, sem tæki sér stöðu með hálaunafólki.

Báðar gegna þær embætti varaforseta ASÍ. Átökin eru því milli tveggja kvenna sem sitja í æðstu forystu sambandsins.

Ólgan nær aftur til afsagnar Drífu

Drífa Snædal sagði af sér sem forseti ASÍ í ágúst 2022. Hún sagði samskiptin við Sólveigu Önnu og Ragnar Þór hafa gert störfin óbærileg á köflum og ekki hafa tekist að finna sameiginlega leið með formönnum tveggja stærstu félaganna.

Halla, sem þá var framkvæmdastjóri ASÍ, tilkynnti skömmu síðar að hún myndi ekki snúa aftur til starfa. 

Drífa Snædal sagði af sér sem forseti ASÍ í ágúst 2022. Hún sagði samskiptin við Sólveigu Önnu Jónsdóttur og Ragnar Þór Ingólfsson hafa gert störfin óbærileg á köflum.Vísir/Vilhelm

Hún hafði komið til ASÍ til að vinna með Drífu og sagði síðustu ár hafa einkennst af hatrammri valdabaráttu og niðurrifi. Starfsfólk hefði verið dregið inn í opinber átök án þess að geta varið sig.

Á þinginu í október 2022 stóðu Sólveig, Vilhjálmur og Ragnar Þór saman. Þau drógu framboð sín til baka og yfirgáfu þingið. Þinginu var frestað þar til um vorið 2023.

Tveimur árum síðar var enginn mótframbjóðandi þegar Finnbjörn var endurkjörinn forseti og Ragnar Þór, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir og Sólveig Anna kjörin varaforsetar. Nú eru harðar opinberar deilur aftur hluti af aðdraganda þingsins.

Flutti ályktun um lok stjórnarsamstarfsins

Halla hefur einnig látið að sér kveða í stjórnmálum og var áhugavert að fylgjast með henni og Bjarna Benediktsson framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins í gær. Haustið 2024 var Halla meðal níu flutningsmanna tillögu fyrir landsfund Vinstri grænna um að tímabært væri að horfa til stjórnarslita. Þá sátu VG, Sjálfstæðisflokkur og Framsókn í ríkisstjórn undir forsæti Bjarna Benediktssonar. Í drögunum voru samstarfsflokkarnir, einkum Sjálfstæðisflokkurinn, sakaðir um að tryggja hagsmuni fjármagnsins á kostnað almennings.

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Halla Gunnarsdóttir, formaður VR. Halla var meðal flutningsmanna ályktunar VG haustið 2024 um að ríkisstjórnarsamstarfið sem Bjarni leiddi nálgaðist leiðarlok. Viku eftir samþykkt hennar tilkynnti hann stjórnarslit.Vísir/Anton Brink

Landsfundurinn samþykkti 6. október ályktun um að samstarfið nálgaðist leiðarlok og ganga ætti til kosninga með vorinu. Halla var einn flutningsmanna samþykktu ályktunarinnar og sagði hana hafa fengið nánast samhljóða stuðning.

„Hún er skýr á því að þetta samstarf sé komið að leiðarlokum,“ sagði Halla þá við Heimildina. Hún taldi ljóst að ríkisstjórnin myndi ekki endast út kjörtímabilið.

Viku síðar tilkynnti Bjarni Benediktsson stjórnarslit. Hann nefndi ágreining um útlendingamál og orkumál og vísaði sérstaklega til landsfundar VG sem dæmis um ólíka framtíðarsýn stjórnarflokkanna. Ályktunin sem Halla beitti sér fyrir var þannig hluti aðdraganda stjórnarslitanna. Ákvörðunina um að slíta samstarfinu tók Bjarni.

Mögulegur klofningur orðinn umræðuefni

Ólgan innan ASÍ hefur þegar verið borin undir forsetaframbjóðendurna. Í umræðum í Spursmálum fyrr í þessum mánuði útilokuðu hvorki Arnaldur né Georg Páll að sambandið gæti klofnað.

Nýr forseti tekur því við eftir að samkomulag hefur náðst við atvinnurekendur um áframhaldandi gildi kjarasamninga, en forystufólkið deilir enn um samningsleiðirnar og árangurinn. Yfirlýsing Sólveigar Önnu um að hún íhugi stöðu Eflingar innan ASÍ sýnir að ágreiningurinn snýst nú einnig um framtíð samstarfsins sjálfs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×