Innlent

Ók lyfjaður á gangandi veg­faranda

Agnar Már Másson skrifar
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Vísir/Vilhelm

Ekið var á gangandi vegfaranda í hverfi 104 í dag. Ökumaðurinn reyndist undir áhrifum lyfja við aksturinn, að sögn lögreglu, sem handtók hann og færði á lögreglustöð til frekari afgreiðslu.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en málinu er ekki lýst frekar. Í sama hverfi var tilkynnt um innbrot og einnig tilkynnt um óvelkominn aðila á veitingahúsi í hverfi 101.

Einnig var tilkynnt um heimiliserjur í hverfi 221 og umferðaróhapp í sama hverfi.

Þá var tilkynnt um aðila að áreita fólk á vinnustað í hverfi 201.

Ökumaður var einnig stöðvaður í akstri einhvers staðar á höfuðborgarsvæðinu en í framsæti bifreiðarinnar hafði verið barn án viðeigandi öryggisbúnaðar, að því er fram kemur í dagbókinni. Ökumaðurinn hafði verið kærður.

Þá er greint frá þjófnaði frá verslun í hverfi 110.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×