Innlent

Nem­endur í Reykja­vík koma best út úr PISA

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Flestir nemendur með afburðahæfni ganga í skóla í Reykjavík.
Flestir nemendur með afburðahæfni ganga í skóla í Reykjavík. Vísir/Anton Brink

Af sjö fjölmennustu sveitarfélögum landsins komu nemendur í Kópavogi og Reykjavík hvað best út úr PISA-könnuninni. Öll sveitarfélögin voru samt sem áður undir meðaltali OECD.

Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur greint frammistöðu íslenskra nemenda í PISA-könnunni niður á sjö fjölmennustu sveitarfélög landsins og borið saman við landsmeðaltal. Þessi sjö sveitarfélög ná til 75 prósent þátttakenda í PISA árið 2025 á Íslandi. 

Hin sveitarfélögin voru tekin saman og sett undir flokkinn „önnur sveitarfélög“ en það samsvarar 25 prósentum nemenda sem tóku prófið.

Nemendur í Kópavogi komu best út úr prófinu og voru yfir meðaltali í öllum þremur greinunum vísindum, stærðfræðilæsi og lesskilningi. Nemendur í Akureyrarbæ og Reykjavík voru einnig yfir meðaltali og sköruðu nemendur í Garðabæ fram úr þegar litið er til stærðfræðilæsis.

Nemendur í Reykjanesbæ komu verst út úr prófinu og þar á eftir nemendur í Hafnarfirði. Önnur sveitarfélög voru einnig undir landsmeðaltalinu.

Nemendur í Kópavogi, Reykjavík, Hafnarfirði og á Akureyri voru yfir meðaltali.

„Frammistaða nemenda í öðrum sveitarfélögum í heild var undir landsmeðaltali á öllum sviðum en hafa þarf í huga að í þessum hópi eru fjölmörg sveitarfélög sem eru sum hver ólík hvað varðar stærð, staðsetningu og lýðfræðilegar breytur,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Leiðréttu eftir stöðu

Ráðuneytið skoðaði einnig muninn frá landsmeðaltali eftir að leiðrétt var fyrir erlendum bakgrunni og ólíkri félags- og efnahagslegri stöðu nemenda. Við leiðréttinguna var litið til tveggja þátta, annars vegar menntunar og starfs foreldra og eigna á heimilinu og hins vegar nemenda sem eiga foreldra eða forsjáraðila sem báðir fæddust erlendis. 

„Ef munur á frammistöðu nemenda í sveitarfélagi og landsmeðaltali minnkar eða hverfur við leiðréttinguna skýrist munurinn að hluta eða að mestu af samsetningu nemendahópsins. Gott er að hafa í huga að leiðréttar niðurstöður segja þó ekki einar og sér til um gæði skólastarfs,“ segir í tilkynningunni.

Þá er Reykjavík eina sveitarfélagið sem mælist yfir meðaltali í öllum þremur greinunum eftir leiðréttinguna.

„Munur á nemendum í Reykjanesbæ og nemendum á landsvísu minnkar eftir leiðréttingu, enda er þar að finna hæsta hlutfall innflytjenda í sveitarfélögunum sjö ásamt því að félags- og efnahagsleg staða mælist þar lægst að jafnaði.“

Flestir í Reykjavík

Þegar litið er til grunnhæfni og afburðanemenda eru niðurstöðurnar álíka þeim fyrri.

Afar fáir nemendur reyndust vera með afburðahæfni og eru nemendur í Reykjavík þeir einu sem skilja sig frá landsmeðaltali. Í öllum sveitarfélögunum var hlutfall nemenda með afburðahæfni undir landsmeðaltali bæði í vísindum og stærðfræðilæsi.

Flestir nemendur með afburðahæfni eru í Reykjavík.

Þegar leiðrétt er fyrir áðurnefndum þáttum eru flestir nemendur á pari hvorn við annan. Reykjavík skarar aftur fram úr þegar litið er til nemenda með afburðahæfni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×