Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Kjartan Kjartansson skrifar 29. september 2026 11:43 Líkan af neðanjarðargagnaveri þýska fyrirtækisins Nothern Data AG í Lefdal-saltnámunni á vesturströnd Noregs. Vísir/EPA Gagnaver hafa skapað fá störf og takmarkaðar tekjur í Noregi. Virðisauki af starfsemi þeirra verður að mestu erlendis enda eru níu af hverjum tíu gagnaverum í landinu í eigu útlendinga.
Þó að þúsundir starfa verði til á meðan gagnaver eru byggð skilja þau lítið eftir sig í heimabyggð samkvæmt nýrri skýrslu nefndar sem veitir norskum stjórnvöldum ráð í tæknimálum. Rekstur gagnaveranna skapar aðeins örfá varanleg störf og virðisauki af starfseminni fyrir Noreg er mun minni en af hefðbundnum iðnaði. Skatttekjur eru einnig takmarkaðar því virðisaukinn á sér stað annars staðar. „Tekjurnar sem verða eftir hjá okkur er tekjuskattur af fólkinu sem vinnur þarna og eignaskattur. Það er allt og sumt,“ segir Sverre Gotaas, formaður Tækninefndar Noregs við norska ríkisútvarpið. Gotaas telur einnig vandamál að engin forgangsröðun sé hjá norskum stjórnvöldum á því hverjir fá leyfi til að reisa gagnaver og í hvaða tilgangi. Enginn greinarmunur sé gerður á því hvort að gagnaverin eigi að hýsa þjónustu fyrir afþreyingu eins og Tiktok annars vegar eða eða samfélagslega mikilvæg gögn eins og heilbrigðisupplýsingar hins vegar. Talsmenn iðnaðarverkamanna óttast um störf í Noregi ef hefðbundinn iðnaður verður undir í samkeppni við erlend gagnaver um raforku. Þeir hafa kallað eftir strangari reglum um gagnaver. „Við þurfum ekki á skefjalausri útbreiðslu gagnavera að halda sem nota rafmagnið sem iðnaðurinn þarf til grænna orkuskipta. Við óttumst um störf okkar. Ef við fáum ekki þá raforku sem við reiðum okkur á glatast þúsundir starfa,“ segir Roger Hansen, formaður Verkalýðsfélags Herøya í Þelamörk í Suður-Noregi.
Noregur Tækni Orkumál Gagnaver Mest lesið Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Viðskipti innlent Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Sjá meira