Viðskipti innlent

Verð­bólga ekki meiri í tvö ár

Bjarki Sigurðsson skrifar
Verðbólga hefur ekki verið meiri í tvö ár.
Verðbólga hefur ekki verið meiri í tvö ár. Vísir/Vilhelm

Verðbólga eykst um 0,3 prósentustig milli mánaða og er nú 5,9 prósent. Verðbólga hefur ekki mælst meiri síðan í ágúst 2024 og þetta er því mesta verðbólgan síðan ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur tók við. 

Vísitala neysluverðs hækkar um 0,39 prósent frá fyrri mánuði. Verð á dísil hækkaði um 18,1 prósent og verð á bensíni um 16,1 prósent. Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 11,7 prósent. 

Skýring Seðlabankans á hvað verðbólga er:

Verðbólga er skilgreind sem viðvarandi hækkun almenns verðlags og er mæld sem tólf mánaða breyting vísitölu neysluverðs. Sú vísitala mælir meðalverð á vörum og þjónustu sem heimili á Íslandi kaupa í hverjum mánuði. Verðbólga felur í sér að verðgildi og kaupmáttur peninga minnkar, þ.e.a.s. minna magn vöru og þjónustu fæst fyrir hverja krónu.

„Þann 1. september rann út tímabundin lækkun virðisaukaskatts á dísil og bensíni og hækkaði VSK á þessum eldsneytisgjöfum því úr 11% í 24%. Ef verð á þessum eldsneytisgjöfum er reiknað með 11% vsk í stað 24% þá fæst að verð á dísil væri 5,7% hærra en fyrir mánuði (áhrif á vísitölu 0,05%) og verð á bensíni væri 3,9% hærra (0,07%). Heildaráhrif virðisaukaskattsbreytingarinnar á vísistölu neysluverðs eru því metin um 0,32% til hækkunar,“ segir í tilkynningu á vef Hagstofunnar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×