Viðskipti innlent

Bein út­sending: Árs­fundur Sam­taka at­vinnu­lífsins

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Lýður Valberg

Ársfundur Samtaka atvinnulífsins fer fram í dag, fimmtudaginn 1. október, kl. 15–17 í Silfurbergi í Hörpu undir yfirskriftinni „Sækjum fram.“ Fylgjast má með fundinum í beinni útsendingu á Vísi.

Í brennidepli verða vinnumarkaðslíkanið og samkeppnishæfni Íslands.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, flytja ávörp. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, flytur erindið Sækjum fram og Rannveig Rist, fyrrverandi forstjóri Rio Tinto á Íslandi, ávarpar fundinn.

Tvö pallborð eru á dagskrá:

Hvað þarf til að sækja fram? Baldvin Þorsteinsson, Birna Ósk Einarsdóttir, Skúli Mogensen og Tómas Már Sigurðsson ræða samkeppnishæfni og rekstrarskilyrði fyrirtækja.

Hvernig rjúfum við vítahringinn? Bryndís Hlöðversdóttir, Gylfi Jónu Arnbjarnarson og Þorsteinn Víglundsson ræða umgjörð vinnumarkaðarins.

Dagskrá fundarins:

  • Ávarp frá Jóni Ólafi Halldórssyni, formanni Samtaka atvinnulífsins.
  • Ávarp frá Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands.
  • Pallborðsumræður: Hvað þarf til að sækja fram?
  • Þátttakendur í pallborði: Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja, Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar, Skúli Mogensen, frumkvöðull, og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku. Stjórnandi: Sigtryggur Magnason, forstöðumaður miðlunarsviðs SA.
  • Ávarp frá Rannveigu Rist, fyrrverandi forstjóra Rio Tinto á Íslandi.
  • Pallborðsumræður: Hvernig rjúfum við vítahringinn?
  • Þátttakendur í pallborði: Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrverandi ráðuneytisstjóri og fyrrverandi ríkissáttasemjari, Gylfi Jónu Arnbjarnarson, ráðgjafi og fyrrverandi forseti ASÍ, og Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, forstjóri Hornsteins og fyrrverandi framkvæmdastjóri SA. Stjórnandi: Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA.
  • Sækjum fram, erindi frá Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóra SA.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×