Viðskipti innlent

Kaldvík fær starfs- og rekstrar­leyfi í Seyðis­firði

Lovísa Arnardóttir skrifar
Til stendur að koma upp laxeldi við Seyðisfjörð. 
Til stendur að koma upp laxeldi við Seyðisfjörð.  Kaldvík

Félagið Kaldvík AS hefur fengið rekstrar- og starfsleyfi til að ala tíu þúsund tonn af laxi frá Matvælastofnun og Umhverfis- og orkustofnun í Seyðisfirði. Í tilkynningu til Kauphallar segir forstjóri það mikilvægan áfanga. 

Í tilkynningu til Kauphallar á Íslandi og í Noregi kemur fram að rekstrarleyfin heimili þeim að ala samanlagt 10.000 tonnum af laxi á eldissvæðunum við Sörlastaðavík, Selstaðavík og Skálanesbót. Af þessum tíu þúsund tonnum fá þau heimild til að ala 6.500 tonn af frjóum laxi og 3.500 tonnum af ófrjóum laxi.

„Útgáfa leyfanna markar mikilvægan áfanga fyrir Kaldvík og lýkur þar með löngu leyfisferli hjá MAST og UOS. Seyðisfjörður mun veita samstæðunni aukinn sveigjanleika í rekstri og styðja við langtímamarkmið hennar um stöðuga og sjálfbæra framleiðslu. Við munum nú meta hvernig og hvenær hægt verður að fella framleiðslu í Seyðisfirði inn í heildarframleiðsluáætlun samstæðunnar, með hliðsjón af þeim leyfisferlum sem eftir eru og fjárhagslegum forgangsröðunarmálum samstæðunnar,“ segir Vidar Aspehaug, forstjóri Kaldvíkur, í tilkynningunni.

Þar kemur einnig fram að tímasetning framkvæmda og upphaf fiskeldis í Seyðisfirði sé þó enn háð því að eftirstandandi leyfisferlum og undirbúningi rekstursins. Umsóknir um framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðra eldismannvirkja við Selstaðavík og Sörlastaðavík séu nú til meðferðar.

Þá kemur fram að lokum að leyfin hafi engin áhrif á áður kynnta afkomu- og sláturáætlun félagsins fyrir árið 2026.

Mótmæla eldinu

Félagið Vá um verndun fjarðar hefur mótmælt áætlunum Kaldvíkur við Seyðisfjörð og hafa sér til stuðnings bent á að í könnun á vegum Múlaþings hafi 75 prósent þátttakenda á Seyðisfirði verið andsnúin eldinu. Þúsundir skrifuðu í fyrra undir áskorun til stjórnvalda um að stöðva leyfisveitinguna. 


Tengdar fréttir

„Staðan er þung“ hjá Kald­vík eftir erfiðan vetur og lækka verðmatið frekar

Framtíð Kaldvíkur mun ráðast af því hver „vöxtur og viðgangur“ stofnsins á árinu 2025 verður hjá fiskeldisfélaginu, að mati hlutabréfagreinanda, en ljóst sé að „engin flugeldasýning“ verður í rekstrinum á yfirstandandi ári. Verðmat á Kaldvík er lækkað um nærri fimmtung, en er samt enn nokkuð hærra en markaðsgengið.

Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló

Euronext kauphöllin í Ósló í Noregi hefur sett Kaldvík AS, sem einnig er skráð á First North markaðnum hér á landi, í skammarkrókinn fyrir að skila ekki ársreikningi á tilsettum tíma.

Fisk­eldis­risar sagðir vera með augun á yfir­töku á Kald­vík og gengið rýkur upp

Nokkur af stærstu laxeldisfyrirtækjum í heimi, meðal annars Bakkafrost í Færeyjum, eru sögð vera að íhuga yfirtökutilboð í Kaldvík og hækkaði hlutabréfaverð þess skarpt á markaði fyrir helgi. Fiskeldisfyrirtækið á Austfjörðum hefur glímt við röð áfalla í rekstrinum um nokkurt skeið og markaðsvirðið er niður um nærri áttatíu prósent á einu ári. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×