Donald Trump

Donald Trump

Fréttir tengdar 45. og 47. forseta Bandaríkjanna, Donald Trump.

Fréttamynd

Endur­greiðir ekki ríkinu fyrir aug­lýsingarnar um­deildu

Donald Trump ætlar ekki að endurgreiða bandaríska ríkinu fyrir umdeildar auglýsingar sem hafa verið birtar í sjónvarpi vestanhafs. Í gær sagði forsetinn að pólitísk aðgerðanefnd hans, MAGA Inc, myndi greiða fyrir auglýsingarnar sem hafa verið harðlega gagnrýndar, þar sem þær hafa verið fjármagnaðar með skattfé og þykja mjög pólitískar.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Greinir skýran vilja til meira sam­starfs

Ráðamenn vestanhafs hafa sýnt skýran vilja til að efla samstarf Bandaríkjanna og Íslands enn frekar. Þetta segist Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra hafa fundið vel eftir fundi hennar með Donald Trump, forseta, og Marco Rubio, utanríkisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Síðustu her­mennirnir fara frá Írak, aftur

Bandarískir hermenn munu á morgun fara frá síðustu herstöðvum sínum í Írak, eftir rúmlega tveggja áratuga viðveru þar, með hléum. Íranir og bandamenn þeirra, sem njóta mikilla áhrifa í Írak þessa dagana, líta á brottflutninginn sem sigur.

Erlent
Fréttamynd

Spurði Xi hvort hann vildi kaupa banda­rísk vopn

Donald Trump spurði Xi Jinping hvort hann hefði áhuga á því að kaupa bandarísk vopn og hergögn. Þessari spurningu varpaði Trump fram á fundi forsetanna í Washington DC í síðustu viku og var markmiðið að réttlæta yfirstandandi vopnasölu til Taívan, sem Kínverjar gera tilkall til.

Erlent
Fréttamynd

Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftir­liti

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir mennina fimm sem handteknir voru nærri herflugstöðinni RAF Fairford í Englandi í nótt hafa ætlað að valda „miklum skaða“ á stöðinni. Hann segir bandarísk yfirvöld hafa haft mennina undir eftirliti um nokkurt skeið og fagnar samstarfi við Breta.

Erlent
Fréttamynd

Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna

Xi Jinping lýkur ferð sinni til Bandaríkjanna með ferð í Skjalasafn Bandaríkjanna þar sem Donald Trump ætlar að sýna honum frelsisyfirlýsinguna frægu frá 1776 og réttindaskrá Bandaríkjanna. Bæði þessi skjöl marka grunnstoðir bandarísks lýðræðis. Trump lýsti þeim sem einhverjum mestu fjársjóðum Bandaríkjanna, áður en hann ætlaði að sýna þau leiðtoga öflugasta kommúnistaríkis heims.

Erlent
Fréttamynd

Þriggja turna þras í fursta­dæmunum

Talsmaður Vladimírs Pútín segir að þriggja hliða fundur milli Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna gæti átt sér stað í náinni framtíð. Það sé þó ekki ljóst enn og viðræður við Bandaríkjamenn standi enn yfir. Vólódímír Selenskí segir að Bandaríkjamenn hafi lagt til að fundurinn fari fram í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Erlent
Fréttamynd

„Höfum aldrei átt betra sam­band“

Donald Trump Bandaríkjaforseti bauð Xi Jinping, forseta Kína, til veglegrar kvöldverðarveislu í Hvíta húsinu í gær þar sem báðir leiðtogar lofuðu nýtt og betra samband ríkjanna. Á sama tíma söfnuðust mótmælendur saman fyrir utan hlið Hvíta hússins og voru nokkrir þeirra handteknir.

Erlent
Fréttamynd

Bannaði Trump að banna fjöl­miðla

Alríkisdómari í Washington DC hefur skipað Hvíta húsinu að veita þremur fjölmiðlum sem Donald Trump bannaði úr byggingunni í síðustu viku aftur aðgang að byggingunni. Samkvæmt úrskurðinum eiga miðlarnir að fá aðgang að Hvíta húsinu næstu fjórtán daga á meðan málið er til meðferðar fyrir dómi.

Erlent
Fréttamynd

Segja að­gengi að heimili for­setans for­réttindi en ekki rétt

Embættismenn innan ríkisstjórnar Donalds Trump segja það vera „forréttindi“ fyrir fjölmiðla að fá aðgang að Hvíta húsinu. Starfsmenn CNN, MS NOW og Politico hafi brotið gegn reglum og viðmiðum um siðprýði og þess vegna hafi þeim verið meinaður aðgangur að Hvíta húsinu.

Erlent
Fréttamynd

Taí­van og mann­réttindi rauðar línur fyrir Kín­verja

Taívan og mannréttindi marka rauðar línur fyrir ráðamenn í Kína, hvað varðar viðræður Donalds Trump og Xi Jinping í Washington DC í dag. Sendiherra Kína í Bandaríkjunum segir að Bandaríkjamenn eigi að hætta að reyna að skapa átyllur eins og þjóðaröryggismál, efnahagslegt ójafnvægi og þrælkunarvinnu til að reyna að halda aftur af framrás Kína.

Erlent
Fréttamynd

Bað Trump um „vetrarpakka“

Vólódímír Selenskí bað Donald Trump um „vetrarpakka“ af hernaðaraðstoð og þá sérstaklega um flugskeyti í Patriot-loftvarnarkerfi, til að verjast skotflaugaárásum Rússa. Hann segir einnig að Bandaríkjamenn séu líklegir til að reyna að koma á vopnahléi sem snýr sérstaklega að orkuinnviðum í bæði Úkraínu og Rússlandi.

Erlent
Fréttamynd

Segir stóra á­kvörðun fram­undan

Donald Trump forseti Bandaríkjanna hótaði í ræðu sinni á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær að afmá klerkastjórnina í Íran ef átökin leystust ekki. Samskipti áttu sér stað á milli fulltrúa landanna á þinginu í gær.

Erlent
Fréttamynd

Xi vill að Trump sleppi takinu á Taí­van

Xi Jinpin, forseti Kína, er talinn ætla að fara fram á það við Donald Trump að Bandaríkin hætti að selja vopn til Taívan. Xi hefur nokkuð öflugt vopn í formi sjaldgæfra málma til að beita Trump þrýstingi. Á móti hefur Trump getu til að skaða efnahag Kína töluvert.

Erlent
Fréttamynd

Þetta er í sam­komu­laginu um Græn­land

Tvær nýjar herstöðvar, „Gullhvelfingin“, stækkun gömlu Thule-geimherstöðvarinnar, bann við hersveitum sem ekki eru frá NATO-ríkjum og aukin viðskipti Bandaríkjahers við grænlensk fyrirtæki.

Erlent
Fréttamynd

Svona var ræða Trumps: Spurning um „ger­eyðingu“ og nýtt nafn á gervi­greind

Donald Trump Bandaríkjaforseti fór um víðan völl eins og hans er von og vísa í árlegri ræðu hans frammi fyrir Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Hann segist standa frammi fyrir mikilli ákvörðun hvað varðar Íran, að gera samning við þarlend stjórnvöld eða eyða íslamska lýðveldinu. Þá gekk sendinefnd Kúbu út úr salnum og forsetinn sagði Bandaríkjamenn bera höfuð og herðar yfir Kína þegar kemur að gervigreind, sem hann nefndi nýju nafni.

Erlent
Fréttamynd

Beita buddunni til að vega á móti ó­vin­sældum Trumps

Repúblikanar eru byrjaðir að verja fúlgum fjár í auglýsingar í aðdraganda kosninganna í nóvember. Þeir sitja á mun digrari sjóðum en Demókratar. Forsetinn sjálfur situr á rúmum fjögur hundruð milljónum dala í pólitískri aðgerðanefnd sinni og er byrjaður að beita honum til að styðja frambjóðendur Repúblikanaflokksins.

Erlent