Þriggja turna þras í furstadæmunum Samúel Karl Ólason skrifar 25. september 2026 10:29 Fyrsti fundurinn á ekki að vera á milli forsetanna þriggja heldur erindreka Rússlands, Bandaríkjanna og Úkraínu. Selenskí segist vilja hitta Pútín en efast um að hann hafi raunverulegan áhuga á friði. AP Talsmaður Vladimírs Pútín segir að þriggja hliða fundur milli Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna gæti átt sér stað í náinni framtíð. Það sé þó ekki ljóst enn og viðræður við Bandaríkjamenn standi enn yfir. Vólódímír Selenskí segir að Bandaríkjamenn hafi lagt til að fundurinn fari fram í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Í viðtali við úkraínskan miðil í morgun sagði Selenskí að hann hefði fengið þau skilaboð frá ríkisstjórn Donalds Trump í Bandaríkjunum að þar væri vonast til þess að hægt væri að halda þennan þriggja hliða fund í furstadæmunum. Bandaríkjamenn buðust til að skipuleggja viðræðurnar en ekki er um að ræða leiðtogafund, heldur fund milli erindreka ríkjanna þriggja. Selenskí sagði að von væri á formlegu boði frá Bandaríkjamönnum og frekari upplýsingar, eins og það hvenær fundurinn ætti að fara fram, lægju ekki fyrir. Hann sagðist þó tilbúinn til að taka þátt í fundinum og hitta Pútín í þeirri von að hægt væri að binda enda á stríðið. Forsetinn lýsti hins vegar yfir miklum efasemdum um að Pútín hefði raunverulegan áhuga á að setjast við samningaborðið. Í samtali við rússneska fjölmiðla í morgun sagði Dmitrí Peskóv, talsmaður Pútíns, að þriggja hliða fundur hefði verið meðal þess sem Pútín hefði rætt við Trump í síma fyrr í mánuðinum. Hann vildi ekki ræða frekar hvað forsetarnir hefðu talað um en sagði að fundurinn gæti mögulega farið fram í náinni framtíð. Þá sagði Peskóv að frekari viðræður við Bandaríkjamenn væru yfirstandandi. Hafa lítið áorkað í friðarmálum Þegar þeir Jared Kushner og Steve Witkoff, tengdasonur Trumps og vinur hans, fóru á fund Pútíns fyrr í mánuðinum var Pútín fullur sjálfstrausts og lýsti því yfir að innan nokkurra mánaða myndu hermenn hans hertaka allt Donbas-svæðið og að Rússar væru tilbúnir til að jafna orkukerfi Úkraínu við jörðu fyrir veturinn. Kushner mun þá hafa bent Pútín á að hann hefði sagt það nákvæmlega sama á fundi þeirra fyrir um ári. Þá spurði Kushner hverjar líkurnar væru á því að þeir myndu heyra það sama eftir annað ár og sagði að best væri að sleppa því bara og koma á friði sem fyrst. Sjá einnig: Veturinn verði Rússum erfiður Áður en hann varð forseti á nýjan leik hét Trump því að binda enda á stríðið á sínum fyrsta degi í embætti eða jafnvel fyrr. Þeir Kushner og Witkoff hafa verið hans helstu tól í þessari viðleitni, eftir að hann gat ekki sjálfur sannfært Pútín um að binda enda á stríðið, en þeim hefur lítið sem ekkert gengið. Þá hafa Bandaríkjamenn reynt að fá Úkraínumenn til að verða við núverandi kröfum Rússa og gefa eftir restina af Donbas-svæðinu, sem myndað er af Dónetsk- og Lúhanskhéruðum. Rússar stjórna svo gott sem öllu Lúhansk en Úkraínumenn stjórna enn stórum hluta Dónetsk en það svæði er gjarnan kallað „virkisbelti“ Úkraínu. Rússar hafa lagt gífurlega mikla áherslu á að hernema þetta svæði en það hefur gengið mjög hægt og er talið hafa kostað þá mjög í mönnum og hergögnum á undanförnum árum. Nýverið bárust fregnir af því að Bandaríkjamenn væru að íhuga að gera þær breytingar að bjóða Rússum umfangsmikla viðskiptasamninga áður en friði hefur verið komið á. Það á að vera til að sýna að þeim sé alvara með að bæta samskipti Bandaríkjanna og Rússlands. Úkraínumenn og aðrir bandamenn þeirra hafa hins vegar lengi kallað eftir því að Bandaríkjamenn auki efnahagslegan þrýsting á Rússa. Trump hefur ítrekað sagt að hann ætli að gera slíkt en hefur aldrei staðið við þau stóru orð.
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Rússland Bandaríkin Vladimír Pútín Donald Trump Sameinuðu arabísku furstadæmin Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Fleiri fréttir Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Hlutu Nóbelsverðlaunin fyrir að leysa efnafræðilega ósamhverfu Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Vill fimmtán ára reynslutímabil fyrir ný aðildarríki Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Sjá meira