Íslenski boltinn

Israel frá Fram

Valur Páll Eiríksson skrifar
Framarar verða án Israel Garcia næsta sumar.
Framarar verða án Israel Garcia næsta sumar. Vísir/Guðmundur

Spænski varnarmaðurinn Israel Garcia kvaddi Fram á samfélagsmiðlum í gær. Hann hefur verið hjá liðinu í tvö ár.

Garcia gekk til liðs við Fram þar síðasta haust og spilaði nokkuð stórt hlutverk á fyrra ári sínu með Frömurum sumarið 20215. Þar spilaði hann 24 leiki og skoraði eitt mark í Bestu deildinni.

Hann var meira á bekknum í ár en kom þó við sögu í 21 leik á frábæru tímabili þar sem Fram hafnaði í 3. sæti og tryggði liðinu þannig sæti í Evrópudeildinni að ári.

„Við höfum deilt ótrúlegum augnablikum saman og við enduðum ferðalagið með því að komast í forkeppni Sambandsdeildarinnar, eitthvað sem Fram hefur beðið eftir í rúman áratug. Ég er gríðarlega stoltur af því sem við áorkuðum saman,“ skrifar Garcia í færslu á Instagram.

Óljóst er hvað tekur við hjá Garcia og hvort hann haldi kyrru fyrir á klakanum eða haldi af landi brott. Hann hefur meðal annars verið orðaður við Njarðvík, Vestra og Þór Akureyri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×