Íslenski boltinn

„Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins fé­lagi og Víkingi“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ingvar Jónsson lyfti Íslandsmeistaraskildinum með félögum sínum í Víking.
Ingvar Jónsson lyfti Íslandsmeistaraskildinum með félögum sínum í Víking. Anton/Vísir

Íslenska körfuboltagoðsögnin Bryndís Guðmundsdóttir hrósaði forráðamönnum og þjálfara Víkinga fyrir hvernig félagið hefur haldið utan um markvörðinn sinn Ingvar Jónsson eftir að hann greindist með illkynja krabbamein.

Bryndís átti sjálf frábæran og sigursælan körfuboltaferil hér á landi og þekkir vel þegar kemur að íslenska íþróttaheiminum. Hún vann meðal annars sex Íslandsmeistaratitla og fjóra bikarmeistaratitla með Keflavík og Snæfelli og alls yfir þrjátíu titla á ferlinum.

Bryndís segist ekki vera mikið fyrir það að tjá sig á netinu en að stuðningurinn við Ingvar hafi kallað á nokkur orð.

Ingvar tók við Íslandsskildinum fyrir hönd Víkinga um síðustu helgi og Víkingar gáfu honum einnig nýjan samning þegar veikindin komu upp.

Víkingar spiluðu í sérstakri treyju í lokaleik Bestu deildarinnar til styrktar Ingvars.Anton/Vísir

Víkingar stóðu einnig fyrir sérstakri söfnun í kringum lokaleikinn þar sem Víkingsliðið spilaði í sérstökum Ingvars-treyjum sem voru síðan boðnar upp og innkoman fór í sérstakan Ingvarssjóð.

„Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi. Þegar mágur minn, Ingvar, greindist með krabbamein hefur félagið sýnt okkur hvað það þýðir í alvöru að standa saman og vera til staðar þegar á reynir,“ skrifar Bryndís.

„Að vita að það stendur heilt félag á bak við Ingvar og fjölskylduna hans er algjörlega ómetanlegt. Hvort sem um er að ræða stuðningsmenn, starfsmenn eða leikmenn þá hefur aldrei staðið á stuðningi eða hjálpsemi,“ skrifar Bryndís og nefnir sérstaklega tvo menn.

Ingvar Jónsson er búinn að standa í marki Víkinga síðan árið 2020.Pawel/Vísir

Það eru þeir Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Víkings, og Sölvi Geir Ottesen, þjálfari liðsins.

„Mig langar sérstaklega að nefna tvo menn sem hafa verið í sambandi við okkur fjölskylduna og sýnt okkur ótrúlega hlýju og stuðning á þessum erfiðu tímum,“ skrifar Bryndís

„Guðjón og Sölvi Geir – þið eruð gull af mönnum, ég segi það aftur og aftur: takk fyrir að vera til staðar fyrir Ingvar og fjölskylduna hans. Það er ekki sjálfgefið að finna svona stuðning og umhyggju og það er erfitt að koma því í orð hversu mikið það hefur þýtt fyrir okkur. Ingvar er sannarlega heppinn að tilheyra svona frábæru félagi,“ skrifar Bryndís.

Færsla Bryndísar í dag.

Tengdar fréttir

Treyja Gylfa fór á milljón

Góðgerðatreyja Víkings og 66° Norður sem Gylfi Þór Sigurðsson klæddist í lokaleik tímabilsins í 2-2 jafntefli við Fram seldist á eina milljón króna. Alls söfnuðust tæplega þrjár milljónir sem renna óskipt til Ingvars Jónssonar, markvarðar Víkingsliðsins.

„Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“

„Þetta er búið að vera langt tímabil og mikið af „upp og niður“-augnablikum. Bæði erfiðir tímar og frábærar stundir saman,“ sagði Gylfi Þór Sigurðsson um nýafstaðið tímabil með Víkingi. Hann varð aftur Íslandsmeistari með liðinu og var svo kosinn besti leikmaður ársins af leikmönnum Bestu deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×