Enski boltinn

„Eina liðið sem ég vildi ekki“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Iraola mætir gömlum félögum í næstu umferð deildabikarsins.
Iraola mætir gömlum félögum í næstu umferð deildabikarsins. EPA

Andoni Iraola, knattspyrnustjóri Liverpool, sagði að það verði „sérstakt“ að mæta Bournemouth í 8-liða úrslitum enska deildabikarsins, en bætti við að hans gamla félag hefði verið eina liðið sem hann vildi ekki mæta í næstu umferð.

Iraola lagði áherslu á að Liverpool þyrfti að „vinna sér inn réttinn“ til að komast í undanúrslit gegn Bournemouth-liði sem er í góðu formi og spilað ljómandi vel frá því að Iraola færði sig yfir á Anfield.

Liverpool tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum keppninnar með sigri á Chelsea í vítaspyrnukeppni eftir að leiknum lauk með 1-1 jafntefli í venjulegum leiktíma í gærkvöld.

Dregið var í 8-liða úrslitin beint eftir leik og þar dróst Liverpool gegn gömlum félögum Iraola í Bournemouth sem sækja Anfield heim í desember.

„Ég átti samtöl fyrir dráttinn og sagði: „Eina liðið sem ég vil ekki fá er Bournemouth,““ sagði Iraola á blaðamannafundi eftir leik í gær.

„Fyrir mig er þetta sérstakt, en þeir þekkja mig mjög vel, þeir hafa verið að spila mjög vel undanfarið og eru á góðu skriði. En svona er þetta bara. Við höfum ekki verið mjög heppnir með drátt hingað til. Við höfum þegar mætt Spurs og Chelsea, og nú Bournemouth, sem verður auðvitað sérstakt fyrir mig. En við þurfum að vinna okkur inn réttinn til að komast í undanúrslitin og ég vona að við getum gert það hér á heimavelli aftur.“

8-liða úrslit enska deildabikarsins

  • Manchester City - Bradford
  • Liverpool - Bournemouth
  • Crystal Palace - Sunderland
  • Fleetwood Town - Everton/Newcastle



Fleiri fréttir

Sjá meira


×