Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Sindri Sverrisson skrifar 28. október 2026 15:47 Andri Lucas Guðjohnsen skorar að meðaltali úr öðru hverju skoti sem hann tekur fyrir Blackburn. Getty/Dave Howarth Andri Lucas Guðjohnsen er væntanlega orðinn að sjóðheitri söluvöru fyrir Blackburn eftir magnaða frammistöðu sína í ensku B-deildinni í fótbolta það sem af er leiktíð.
Andri hefur farið á kostum í síðustu leikjum og skorað tvær tvennur í röð. Fyrst í grátlegu 3-2 tapi gegn WBA og svo í 2-0 sigri gegn Wrexham um síðustu helgi. Andri hefur núna skorað átta mörk í deildinni og er þar næstmarkahæstur. Það sem vekur þó ekki síður athygli er hve fá skot Andri hefur þurft til þess að ná átta mörkum. Hann hefur nefnilega bara þurft sextán skot samkvæmt tölfræðiveitum á borð við Fotmob. Þetta þýðir að Andri hefur skorað úr 50% skota sinna. Eins og bent var á í hlaðvarpinu Not The Top 20 Pod, þar sem áhersla er lögð á deildirnar fyrir neðan ensku úrvalsdeildina, hefur Andri með þessu skotið fremstu framherjum heims ref fyrir rass, köppum á borð við Gullboltahafann Harry Kane, Erling Haaland, Kylian Mbappé og Raphinha. Blackburn's Iceman Is On Fire! 🇮🇸🔥 The outrageous stats that prove Andri Guðjohnsen is the most clinical striker in Europe right now, and why Tony Mowbray is the man to take him to another level... https://t.co/01W6ByX9vX— Not The Top 20 Pod (@NTT20Pod) October 27, 2026 Kane hefur skorað fjögur mörk úr 31 skoti fyrir Bayern í þýsku deildinni það sem af er leiktíð, eða úr 13% skota sinna, og Haaland er með níu mörk úr 30 skotum í ensku úrvalsdeildinni svo hann hefur skorað úr 30% skota sinna. Sá sem kemst næst Andra í bestu deildum Evrópu, af leikmönnum sem átt hafa að minnsta kosti tíu skot, er portúgalski framherjinn Gustavo Varela hjá Monza á Ítalíu sem skorað hefur sjö mörk úr sextán skotum, eða úr 44% skota sinna. Raphinha er svo í ákveðnum sérflokki eftir heil 13 mörk úr aðeins 32 skotum fyrir Barcelona í spænsku deildinni, þó að hlutfallið hans sé samt sem áður lægra en hjá Andra eða 41%. Andri hefur ekki bara verið stórkostlegur fyrir Blackburn heldur einnig íslenska landsliðið en hann skoraði tvö mörk og átti eina stoðsendingu í síðustu landsleikjatörn. Það styttist í næstu landsleikjatörn en Ísland sækir Búlgaríu heim 13. nóvember og tekur svo á móti Lúxemborg þremur dögum síðar í lokaumferð Þjóðadeildarinnar.
Enski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Sjá meira