Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 29. október 2026 14:39 Þórður Þórarinsson er bæjarstjóri Hafnarfjarðarbæjar. Vísir/Lýður Uppsögnum í Hafnarfirði er lokið að sögn bæjarstjóra. Fjárhagsstaða bæjarins sé slæm og þurfi þau að spara rúma tvo milljarða. Til að greina stöðuna naut bærinn þjónustu ráðgjafafyrirtækis. „
Það er nú þannig að fjárhagsstaða bæjarins kallar á miklar aðgerðir. Við þurfum að spara upp undir þrjá milljarða á næsta ári og þetta er liður í því,“ segir Þórður Þórarinsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, í samtali við fréttastofu. Í tilkynningu frá bænum í morgun sagði að af þeim 21,6 stöðugildum sem lögð voru niður hefði þremur verið boðin önnur störf hjá bænum. Nettófækkunin var því 18,6 stöðugildi og á hún að skila 330 milljónum króna í varanlegan sparnað frá og með árinu 2028. Einnig er ráðningabann í gildi. Samkvæmt áætlun átti bærinn að skila fjögur hundruð milljóna króna afgangi í lok árs en reyndist hallinn vera upp á rúma tvo milljarða króna. Vegna þessa þurfi að ráðast í hagræðingaraðgerðir. Þessi gríðarlegi halli stafi af því að byggingaréttur var hátt í tveimur milljörðum lægri en gert var ráð fyrir. Þórður segir að hugsanlega verði bæjarbúar varir við hagræðingarnar þegar kemur að þjónustu en einungis til skamms tíma. Búið var að ráðast í undirbúning svo það yrði sem minnst röskun þegar kemur að þjónustu við bæjarbúa. Hafnarfjarðarbær naut aðstoðar ráðgjafafyrirtækisins KPMG sem greindi fjárhag bæjarins. „Að baki ákvörðuninni liggur náttúrulega mikil greiningarvinna á fjárhagi bæjarins og við höfum notað hagdeild sem hefur greint stöðuna með okkur. Það liggur að baki árshlutauppgjör fyrstu sex mánaðanna og svo höfum við notið ráðgjafar til þess að greina fjárhag bæjarins.“ Sorgardagur Uppsagnirnar náðu ekki til starfsmanna sem sinna framlínustörfum heldur frekar til þeirra sem vinna í höfuðstöðvum bæjarins. Þeim sé þá einnig lokið og engar áætlanir séu um frekari uppsagnir „Við reyndum að fara eins vægt í þetta og við mögulega gátum. Það er um að ræða ellefu prósenta fækkun í stjórnsýslu bæjarins en þegar þú lítur til allra starfsmanna Hafnarfjarðarbæjar þá er um að ræða eins prósents fækkun,“ segir hann. „Við þurfum auðvitað líka að láta enda ná saman vegna þess að það er þannig að skatttekjur bæjarins verða að standa undir rekstri hans og það er ekki staðan í dag.“ Aðspurður hvort að aukin umsvif gervigreindar hafi leitt til uppsagnanna segist Þórður ekki ætla að fullyrða neitt en það sé þó ekki það sem liggi að baki. „Það er ekki hluti af greiningarvinnu okkar sem liggur hér að baki að það sé að færast í gervigreind en vissulega með aukinni tækni og ýmsum tækniframförum þá auðvitað breytast störf.“ Þórður tekur fram að það sé gríðarlega erfitt að kveðja starfsfólkið sem hafi lagt mikið til bæjarins. Það sé sorgardagur.
Hafnarfjörður Rekstur hins opinbera Vinnumarkaður Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Fleiri fréttir Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Sjá meira