Innlent

Rukka er­lenda nem­endur um milljónir

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Silja Bára Ómarsdóttir er rektor Háskóla Íslands.
Silja Bára Ómarsdóttir er rektor Háskóla Íslands. Vísir/Anton Brink

Nemendur sem koma utan Evrópska efnahagssvæðisins og hyggjast stunda nám við Háskóla Íslands þurfa núna að greiða allt að rúmar þrjár milljónir króna.

Þeir nemendur sem vilja stunda grunnám í alþjóðlegu námi í menntunarfræði og grunnám á hugvísindasviði þurfa að greiða minnst eða 1,450 milljónir króna á ári. Gjöldin hækka hins vegar umtalsvert þegar litið er til náms á meistarastigi.

Nám til meistaragráðu á heilbrigðisvísindasviði og svokallað þverfaglegt nám er dýrast eða 3,250 milljónir króna á ári. Aðrar námsleiðir, til dæmis á félagsvísindasviði, kosta 2,350 milljónir króna.

Þetta má sjá á heimasíðu Háskóla Íslands á ensku.

Auk þess að greiða skólagjöldin ár hvert er nemendunum einnig skylt að greiða hundrað þúsund króna skrásetningargjaldið og umsóknargjald upp á tuttugu þúsund krónur sem ekki fæst endurgreitt. 

Breytingin kemur í kjölfar lagabreytinga Loga Einarssonar háskólamálaráðherra sem lagði til að háskólar mættu gera nemendum sem eru með ríkisfang utan Evrópska efnahagssvæðisins, að undanskildum Færeyjum og Grænlandi, að greiða sérstök gjöld. Þau eiga að mæta þeim útgjöldum fyrir þá nemendur sem ekki fylgir fjárframlag.

Á sama tíma og heimild var gefin fyrir skólagjöldunum var skrásetningargjald háskólanna hækkað úr 75 þúsund krónum í hundrað þúsund krónur.

Háskóli Íslands er ekki sá eini sem hefur nýtt sér lögin og sett á skólagjöld. Í vor reið Listaháskóli Íslands á vaðið og hækkaði skólagjöldin en dýrasta námsleiðin nemur 5,5 milljónum króna.

Miðað við athugun á heimasíðu Háskólans á Akureyri hafa skólagjöldin ekki verið sett á þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×