Innlent

Söfnuðust saman við sendi­ráðið og mót­mæltu refsiaðgerðum

Freyja Þórisdóttir skrifar
Hópur fólks, meðal annars meðlimir í Vináttufélagi Íslands og Kúbu, safnaðist saman fyrir utan bandaríska sendiráðið um klukkan 17:00 í dag.
Hópur fólks, meðal annars meðlimir í Vináttufélagi Íslands og Kúbu, safnaðist saman fyrir utan bandaríska sendiráðið um klukkan 17:00 í dag. Vísir

Vináttufélag Íslands og Kúbu stóð fyrir mótmælum vegna refsiaðgerða Bandaríkjanna gegn Kúbu en þau fóru fram á sjötta tímanum við bandaríska sendiráðið. Þá var vegna þessa gefin út sérstök öryggisviðvörun fyrr í dag og sendiráðinu lokað snemma.

Í tilkynningu sem birt var á Facebook-síðu sendiráðsins kom fram að sendiráðið yrði opnað á réttum tíma í fyrramálið, fimmtudaginn 29. október. Þá væru bandarískir ríkisborgarar hvattir til að forðast svæðið og gæta ávallt varúðar í grennd við mótmæli. Þeim sem kynnu að verða vitni eða fórnarlamb glæps var bent á að hafa samband við Neyðarlínuna.

„Jafnvel mótmæli sem eiga að vera friðsamleg geta snúist upp í átök og hugsanlega stigmagnast í ofbeldi,“ stóð í færslunni.

Sjá einnig: Gefa út öryggisviðvörun vegna mót­mæla

Miðað við myndir sem voru teknar á vettvangi um klukkan hálf sex í kvöld voru á bilinu þrjátíu til fjörutíu mótmælendur samankomnir við sendiráðið en þá mátti einnig sjá laganna verði skammt frá.

Bandaríska sendiráðinu, sem er til húsa við Engjateig í Reykjavík, var lokað snemma vegna mótmælanna.Vísir
Mótmælendur voru margir hverjir búnir að útbúa skilti og aðrir mættu með kúbverska eða íslenska fánann. Þá var í það minnsta einn sem hélt á fána 26. júlí hreyfingarinnar.Vísir
Mótmælendur héldu sig í nokkurra metra fjarlægð frá lóð sendiráðsins.Vísir

Tengdar fréttir

Segir Kúbu næsta á eftir Íran

Bandaríkin beittu í gær Miguel Díaz-Canel, forseta Kúbu, refsiaðgerðum. Auk hans voru eiginkona hans og þrír aðrir einnig beittir refsiaðgerðum en Bandaríkjamenn hafa sett verulegan þrýsting á nágranna sína og hefur Donald Trump hótað hernaðaraðgerðum gegn eyríkinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×