Leik lokið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 29. október 2026 18:33 Hilmar Smári fór mikinn í kvöld og var með 30 framlagsstig. Pawel/Vísir Stjörnumenn fögnuðu sínum fyrsta sigri í Bónusdeild karla í körfubolta í kvöld þegar liðið vann sex stiga sigur á ÍR-ingum í Garðabænum, 102-96. Stjörnuliðið hafði tapað fyrstu þremur leikjum sínum. ÍR-ingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og náðu fjórtan stiga forskoti snemma í fyrsta leikhluta. Stjörnumenn tóku hins vegar við sér eftir leikhlé og náðu að minnka muninn niður í eitt stig áður en leikhlutanum lauk, 21-22. Heimamenn héldu áfram að bæta í í öðrum leikhluta og náðu þá yfirhöndinni. Stjarnan vann leikhlutan 23-15 og leiddi 44-37 í hálfleik. Í þriðja leikhluta bættu heimamenn enn frekar í og náðu mest 19 stiga forskoti. Sóknarleikur Stjörnunnar var öflugur en liðið skoraði 37 stig í leikhlutanum. Nojel Eastern fór fyrir heimamönnum og Bjarni Guðmann lét einnig vel að sér kveða. Montez Mathis reyndi að halda gestunum inni í leiknum og skoraði 13 stig. Stjarnan leiddi 81-63 fyrir lokaleikhlutann. ÍR-ingar tóku við sér í fjórða leikhluta og tókst að minnka 18 stiga forskot Stjörnunnar niður í sjö stig. Þrátt fyrir góða endurkomu í þriðja leikhluta þá héldu Stjörnumenn sér alltaf í hæfilegri fjarlægð. Lokatölur 102-96 og heimamönnum tókst að sigla fyrsta sigri tímabilsins heim. Atvik leiksins Það hlýtur að vera viðsnúningur Stjörnunnar í fyrsta leikhluta. Stjörnur og skúrkar Nojel Imani var stigahæstur hjá Stjörnunni með 26 stig, 5 fráköst og 6 stoðsendingar auk þess að vera með 33 framlagsstig. Hilmar Smári Henningsson kom þar næstur með 24 stig, 7 fráköst og 7 stoðsendingar og 30 framlagsstig. Tómas Orri Hjálmarsson var stigahæstur hjá ÍR-ingum með 23 stig og 7 fráköst. Montez Mathis kom þar næstur með 22 stig, 4 fráköst og 8 stoðsendingar. Stemning og umgjörð Það er alltaf góð stemning í Garðabænum og umgjörðin ávallt til fyrirmyndar. Dómarar Sigmundur Már Herbertsson, Sigurbaldur Frímannsson og Bergur Daði Ágústsson sáu um dómgæsluna í kvöld og stóðu sig með prýði. Körfubolti Bónus-deild karla Stjarnan ÍR