Körfubolti

Enn eitt á­fallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viktor Jónas Lúðvíksson

Stjörnumenn urðu fyrir enn einu áfallinu í kvöld þegar unglingalandsliðsmaðurinn Viktor Jónas Lúðvíksson meiddist illa á öxl í leik með KFG á móti Blikum í 1. deild karla í körfubolta.

Viktor meiddist á öxl og óttast er að hann hafi farið úr axlarlið.

Viktor Jónas, sem var lykilmaður í tuttugu ára landsliðinu í sumar, og hefur skilað 9,0 stigum og 6,3 fráköstum að meðaltali í leik í fyrstu þremur leikjunum í Bónus deildinni. 

Stjarnan hefur misst marga lykilmenn í meiðsli en landsliðsmaðurinn Orri Gunnarsson er enn að ná sér eftir krossbandsslit og Ægir Þór Steinarsson er nýkominn til baka eftir slæmt meiðsli á olnboga í úrslitakeppninni síðasta vor.

Hann spilar einnig með KFG, sem er varalið Stjörnunnar og skipað ungum og stórefnilegum leikmönnum félagsins.

KFG vann Blika í kvöld en Blikarnir höfðu slegið Íslandsmeistara Grindavíkur út í bikarnum í byrjun vikunnar.

Viktor var kominn með 31 stig og 13 fráköst þegar hann meiddist undir lok leiksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×