Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Sindri Sverrisson skrifar 21. október 2026 10:30 Nablinn gladdist með Grindvíkingum yfir Íslandsmeistaratitlinum síðasta vor en segir liðið það versta í Bónus-deildinni sem stendur eftir skelfilega byrjun á tímabilinu. Samsett/Sigurður Ingi Pálsson Andri Már Eggertsson, eða Nablinn, tók fram grillspaðann og grillaði fimm verstu liðin í Bónus-deild karla í körfubolta þessa stundina. Hann setti Íslandsmeistara Grindavíkur í versta sætið.
Andri sýndi enga vægð þegar hann fór yfir fimm verstu liðin í Körfuboltakvöldi Extra á Sýn Sport Ísland í gærkvöld, eins og sjá má í spilaranum hér að neðan. Klippa: Nablinn grillaði fimm verstu liðin Andri setti Njarðvík, Sindra, Stjarnan, Ármann og Grindavík á lista yfir fimm verstu liðin og hafði sín rök fyrir því. Verstu liðin í Bónus-deild karla: 5. Njarðvík „Þeir eru búnir að vera með „Mario Matasovic“-afsökunina í núna að verða ár. Þeir þurfa að rífa sig í gang og Bandaríkjamaðurinn þeirra, Makye Richard, verður aðeins að fara að slaka á TikTok og fara að koma með sigur á vellinum.“ 4. Sindri „Þeir voru fínir á móti ÍR en þetta eru of stuttir kaflar. Áttu einn kafla á móti Keflavík. En þetta er ekkert meira en það. Þeir þurfa betri og lengri kafla ef þeir ætla ekki niður.“ 3. Stjarnan „Þetta hefur byrjað hræðilega. Þeir eru búnir að skipta um Bandaríkjamenn og eru að reyna að bregðast við. Við höfum ekki fengið að sjá Emil Barja-boltann sem við þekkjum frá því að hann gerði kvennalið Hauka að Íslandsmeisturum.“ 2. Ármann „Lélegasta liðið þannig lagað, á pappír. En við munum hvernig umræðan var í fyrra. Þeir byrjuðu mjög illa og allir héldu að þeir færu lóðrétt niður. En nú er KKÍ að innrétta skrifstofur fyrir þann pening sem Ármenningar eyddu í félagaskipti á síðasta tímabili. Þeir skiptu náttúrulega heilu liði út. Ef þeir gera það ekki aftur – og KKÍ getur þá kannski farið í árshátíðarferð erlendis – þá bara falla þeir.“ 1. Grindavík „Eða Krísuvík eins og einhverjir eru farnir að kalla þá. Það hefur gengið bölvanlega hjá þeim og núna síðast voru þeir að falla út gegn „afreksakademíu MK“ í Kópavoginum [gegn Breiðabliki í bikarkeppninni]. Það er auðvitað bara fyrir neðan allar hellur. Maður spyr sig, ætlar Lárus Jónsson [aðstoðarþjálfari Grindavíkur og bæjarfulltrúi í Hveragerðisbæ] að fella Þór Þorlákshöfn og Grindavík á tveimur árum? Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu? Það bara hlýtur að vera.“
Bónus-deild karla Körfuboltakvöld UMF Grindavík Stjarnan Ármann Sindri UMF Njarðvík Mest lesið Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Fótbolti Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Fleiri fréttir Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Sjá meira