Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Stjarnan tók á móti Ármanni í annarri umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Stjarnan byrjaði vel og náði að viðhalda forskotinu og sigldi heim sigri þar sem leikurinn endaði 80-62. Körfubolti 6.10.2026 20:17
Lentu í vandræðum þegar þeir spáðu Sindra þægilega uppi Upphitunarþáttur Bónus-körfuboltakvölds var í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland í gærkvöldi. Sport 6.10.2026 14:30
Jón Arnór byrjar að þjálfa Jón Arnór Stefánsson, einn farsælasti körfuboltamaður Íslands frá upphafi, hefur ákveðið að miðla af þekkingu sinni sem þjálfari í vetur. Körfubolti 28.8.2026 10:02
Steinar Kaldal: Við duttum, misstum ísöxina og kúturinn kláraðist Steinar Kaldal þjálfari Ármanns var í sjöunda himni þegar hann mætti í viðtal eftir sigur sinna manna. Hann kom beint úr fögnuði í klefanum. Körfubolti 26. mars 2026 22:01
Leik lokið: ÍA-Ármann 103-107 | Ármenningar kláruðu sitt Ármenningar kórnónuðu frábæran endi á tímabilinu og gylltryggðu sæti sitt í Bónusdeild karla í körfubolta með fjögurra stiga sigri á föllnum Skagamönnum, 107-103. Körfubolti 26. mars 2026 21:04
Sex félög pikkföst í sínu sæti en barist um þrjú laus sæti Lokaumferð Bónusdeildar karla í körfubolta fer fram í kvöld og baráttan snýst um þrjú laus sæti. Grindavík er orðið deildarmeistari en Grindvíkingar geta haft áhrif á fallbaráttuna. Körfubolti 26. mars 2026 11:33
Hættur með Ármann en tekur virkan þátt í leitinni Ármenningar eru nú í leit að nýjum þjálfara fyrir kvennalið sitt í körfubolta sem lék í efstu deild í vetur, í fyrsta sinn í 65 ár. Fráfarandi þjálfari er í nokkuð óvenjulegri stöðu því hann leitar nú að arftaka. Körfubolti 25. mars 2026 12:02
Ármann fékk skell í kveðjugjöf Ármann spilaði kveðjuleik sinn í Bónus-deild kvenna í körfubolta í kvöld og tapaði honum stórt gegn Tindastóli á Sauðárkróki, 95-69. Körfubolti 21. mars 2026 21:12
Uppgjör: Ármann-Grindavík 103-87 | Rúlluðu upp deildarmeisturunum Ármenningar stigu stórt skref í átt að því að halda sér í Bónusdeild karla í körfubolta eftir sextán stiga sigur á nýkrýndum deildarmeisturum Grindavíkur, 103-87. Körfubolti 19. mars 2026 20:52
Ómetanlegt fyrir nýliða að hafa þessa bræður „Bræðurnir og Zarko, þetta er lykillinn að þessari velgengni hjá þeim,“ sagði Hermann Hauksson um lið Ármanns. Nánast öllum að óvörum eru Ármenningar nú fyrir ofan fallsætin í Bónus-deildinni í körfubolta, þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. Körfubolti 16. mars 2026 10:00
„Einn stærsti sigur hjá félaginu í körfubolta“ Ármann vann afar mikilvægan sigur gegn Þór Þorlákshöfn í kvöld 74-79. Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, var afar sáttur með sigurinn og það var mikil gleði í hópnum eftir leik. Sport 12. mars 2026 22:35
Þór Þ. - Ármann 74-79 | Ármenningar skildu Þórsara eftir í fallsæti Ármann sótti einn mikilvægasta sigur tímabilsins til Þorlákshafnar og skildi Þór eftir í fallsæti þegar tvær umferðir eru eftir af Bónus deild karla í körfubolta. Lokatölur 74-79 fyrir Ármanni eftir æsispennu. Körfubolti 12. mars 2026 18:32
Risa leikur í kvöld: „Einn af þeim stærri í sögu Þórs Þorlákshafnar“ Þór Þorlákshöfn berst fyrir lífi sínu í Bónus deildinni og mætir liði Ármanns í kvöld í algjörum lykilleik sem þjálfari Þórs, Lárus Jónsson, segir vera einn þann mikilvægasta í sögu félagsins. Körfubolti 12. mars 2026 13:03
Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Dwayne Lautier-Ogunleye fór fyrir sínum mönnum í Njarðvík þegar þeir sóttu sigur í Laugardalshöllina gegn Ármanni. Kappinn skoraði 48 stig í 87-104 sigri sem skiptir Njarðvíkinga miklu máli. Körfubolti 6. mars 2026 20:55
Stjarnan kláraði Ármann snemma en Stólarnir stóðu í Keflavík Tveir leikir fóru fram í neðri hluta Bónus deildar kvenna í kvöld. Stjarnan vann öruggan sigur gegn Ármanni, sem minnkaði muninn undir lok leiks niður í 83-88. Keflavík hélt Tindastóli frá sér og fagnaði tíu stiga 77-67 sigri. Körfubolti 4. mars 2026 21:15
Helena ekki lengur ein í þrjátíu stiga þrennuhópnum Ármenningurinn Jónína Þórdís Karlsdóttir kom sér í mjög fámennan hóp með frammistöðu sinni í þríframlengdum leik í Hveragerði um helgina. Körfubolti 2. mars 2026 14:01
Með 52 stig í þríframlengdum botnslag Jadakiss Guinn skoraði 52 stig í ótrúlegum sigri Hamars/Þórs á Ármanni í botnslag Bónus-deildar kvenna í körfubolta í Hveragerði í dag. Körfubolti 28. febrúar 2026 18:24
Bikarmeistarablús í Höllinni í boði Ármenninga Ármann byrjar frábærlega í neðri hluta Bónusdeildar kvenna í körfubolta því liðið vann óvæntan níu stiga sigur á bikarmeisturum Keflavíkur í kvöld, 84-75. Körfubolti 24. febrúar 2026 20:54
Uppgjörið: Ármann-Stjarnan 88-90 | Orri með sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok Stjörnumenn lentu óvænt í kröppum dansi á móti Ármanni í Laugardalshöllinni í 18. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta í kvöld en tókst að vinna upp forskot heimamanna og tryggja sér nauman sigur. Orri Gunnarsson skoraði sigurkörfuna tveimur sekúndum fyrir leikslok eftir að hafa náð sóknarfrákasti en lokatölur í leiknum urðu 88-90 Stjörnunni í vil. Körfubolti 20. febrúar 2026 20:52
Valskonur upp í annað sætið og Tindastóll sótti sterkan sigur Valur kom sér upp í annað sæti Bónus deildar kvenna með 78-69 sigri gegn Stjörnunni í 18. umferð. Á sama tíma sótti Tindastóll mikilvægan 59-78 sigur gegn Ármanni. Körfubolti 17. febrúar 2026 21:17
Umfjöllun og viðtöl: Tindastóll 113-76 Ármann | Stólarnir ekki í vandræðum í Síkinu Tindastóll og Ármann leiddu saman hesta sína í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld þar sem Tindastóll fór með öruggan sigur 113-76 í kaflaskiptum leik. Körfubolti 13. febrúar 2026 21:45
Njarðvík vann nýliðana í framlengingu og Stólarnir sóttu sigur til Þorlákshafnar Njarðvík vann 85-73 sigur gegn Ármanni í framlengdum leik og Tindastóll vann 87-79 á útivelli gegn Hamar/Þór í 17. umferð Bónus deildar kvenna í körfubolta. Körfubolti 11. febrúar 2026 21:17
„Þetta gefur mér vonir um að við getum barist um þetta“ Borce Ilievski, þjálfari ÍR, var að vonum ánægður með sannfærandi sigur sinna manna gegn Ármanni nú í kvöld. ÍR-liðið lék afar vel í dag gegn Ármanni sem hafði unnið tvo leiki í röð fyrir kvöldið í kvöld en lék kanalausir þar sem Brandon Averette er handleggsbrotinn. Körfubolti 29. janúar 2026 21:50
Uppgjör og viðtal: Ármann - ÍR 74-109 | Fóru létt með kanalausa Ármenninga Sigurganga Ármenninga endaði snögglega í Laugardalshöllinni í kvöld en ÍR-ingar mættu og unnu 35 stiga stórsigur, 109-74. Körfubolti 29. janúar 2026 20:54