Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2026 20:14 Diljá Ögn Lárusdóttir var enn á ný frábær í Stjörnuliðinu en hún hefur farið á kostum í sigurgöngunni. Vísir/Hulda Margrét Stjarnan hélt sigurgöngu sinni áfram í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld með þrettán stiga sigri á Tindastól, 93-80.
Stjörnukonur misstu marga leikmenn í haust og töpuðu svo fyrsta leik tímabilsins en hafa heldur betur svarað því. Þetta var þriðji sigurleikur liðsins í röð. Stjörnuliðið réði reyndar illa við argentínsku landsliðskonuna Florenciu Chagas en 41 stig frá henni voru ekki nóg fyrir Stólana. Chagas skoraði sjö þrista og hitti úr 59 prósent skota sinna utan af velli. Diljá Ögn Lárusdóttir var enn á ný frábær í Stjörnuliðinu með 26 stig og Eva Wium Elíasdóttir skilaði næstum því þrennu með 15 stigum, 7 fráköstum og 13 stoðsendingum. Agnes María Svansdóttir skoraði 20 stig og tók 7 fráköst. Xaviera Dyer var síðan með 6 stig, 14 fráköst og 4 stoðsendingar. Stina Almqvist skoraði 17 stig og tók 11 fráköst. Tindastólsliðið byrjaði leikinn vel og var 25-19 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Stjörnukonur svöruðu hins vegar með frábærum öðrum leikhluta sem Garðbæingar unnu með ellefu stiga mun, 27-16. Florencia Chagas var komin með 22 stig fyrir Stólana í hálfleik en liðið var samt fimm stigum undir, 46-41. Kolbrún María Ármannsdóttir klikkaði á öllum níu skotum sínum í fyrri hálfleik en byrjaði þann síðari á því að setja niður þrist. Því miður fyrir gestina var það stutt gaman því landsliðskonan átti afar erfitt kvöld á móti uppeldisfélaginu sínu. Stjörnukonur voru áfram skrefinu á undan og unnu sannfærandi sigur. Kolbrún endaði með 8 stig, 8 fráköst og 8 stoðsendingar en klikkaði á 18 af 21 skoti sínu. Stólarnir unnu tvo fyrstu leiki sína en hafa nú tapað tveimur leikjum í röð. Chagas var langstigahæst en Ana Clara Paz skoraði 13 stig. Tindastólsliðið lék án bandarísks leikmanns í leiknum.
Bónus-deild kvenna Stjarnan Tindastóll Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira