Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Valur Páll Eiríksson skrifar 22. október 2026 20:50 Ármenningar áttu ekki séns í KR í kvöld. Vísir/Anton Brink KR vann einkar öruggan 108-72 sigur á Ármanni í þriðju umferð Bónus deildar karla í körfubolta í kvöld. KR er með fullt hús en Ármann án stiga. Taplausir KR-ingar tóku á móti stigalausum Ármenningum í Vesturbænum í kvöld og spurningin hvort eitthvað myndi undan láta. Það hefur verið ljár á leik KR-inga að þeim hefur gengið illa í byrjun leikja og engin breyting varð á í kvöld. Ármenningar voru orkumiklir og það vildi ekkert niður hjá KR. Þeir byrjuðu kvöldið á því að hitta einu af fyrstu 13 þriggja stiga skotum sínum, sem gerði nýtingu upp á sjö present. Ármann leiddi verðskuldað með átta stiga mun, 26-18, eftir fyrsta leikhlutann. KR brá á það ráð að pressa hátt og oftar en einu sinni, oftar en tvisvar og oftar en þrisvar töpuðu Ármenningar boltanum einkar klaufalega nánast undir eigin körfu og gáfu KR-ingum stig. Það þurfti ekki meira til að KR-ingar fyndu lykt af blóði og réðust á bráðina. Ármenningar misstu hausinn og KR skoraði heil 35 stig gegn tíu í öðrum leikhlutanum sem var eign heimamanna. Staðan var því 53-37 í hálfleik. Þriðji leikhlutinn tók við og fyrir óháðan áhorfanda var hann hrein unun áhorfs. Bæði lið keyrðu upp hraðann, boltinn gekk fram og til baka, engar villur, engin leikhlé og engin stopp. Tíu mínútna leikhlutinn kláraðist á mettíma þar sem KR skoraði 27 stig gegn 23 stigum Ármanns og var spennan því ekki beint mikil en leikurinn skemmtilegur áhorfs. KR kláraði leikinn endanlega snemma í fjórða leikhluta og ungir leikmenn beggja liða fengu að klára leikinn. Munurinn varð að endingu 34 stig, 108-74 fyrir KR sem er með fullt hús eftir þrjá leiki en Ármann leitar enn fyrstu stiganna. Körfubolti Bónus-deild karla KR Ármann