Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. október 2026 07:01 Jón Arnór Stefánsson, Atli Freyr Haraldsson Katrínarson og Tryggvi Snær Hlinason eru þeir þrír táningar sem hafa skilað hæsta framlagi í fyrstu tveimur leikjum sínum í úrvalsdeild karla. Vísir/Bára Dröfn/FIBA.basketball/Sigurjón Hinn sextán ára gamli Atli Freyr Haraldsson Katrínarson hefur óvænt verið ein af stjörnum Bónus deildar karla í körfubolta í fyrstu tveimur umferðunum.
Atli Freyr var í byrjunarliði Valsmanna í fyrsta leik sem var jafnframt hans fyrsti leikur í úrvalsdeild karla. Það var sögulegt út af fyrir sig að byrja leik fyrir eitt besta lið landsins aðeins sextán ára gamall. Hann var aftur á móti langt frá því að vera hættur að skrifa nýjan kafla í íslensku körfuboltasöguna. Tölfræðivefurinn Körfustatt.is hefur opnað nýjar víddir inn í tölfræði Bónusdeildanna og nú er hægt að spyrja gagnagrunninn að því hvaða táningur væri með hæsta framlagið í fyrstu tveimur leikjum sínum í úrvalsdeildinni. Í ljós kemur að frammistaða Ara í fyrstu tveimur leikjum sínum er langmesta framlag sem táningur hefur boðið upp á í tveimur fyrstu leikjunum sínum á ferlinum. Hann hoppar upp fyrir goðsagnirnar Tryggva Snæ Hlinason og Jón Arnór Stefánsson sem voru áður í tveimur fyrstu sætunum enda komu þeir mjög öflugir inn í deildina á sínum tíma áður en þeir fóru og gerðu garðinn frægan á atvinnumannaferli í Evrópu. Atli Freyr er með 17,0 stig og 13,0 fráköst að meðaltali í leik í þessum tveimur sigurleikjum Vals á móti Stjörnunni og Grindavík sem eru auðvitað Íslandsmeistaralið síðustu tveggja ára. Atli nýtti skotin sín afar vel eða 72% (13 af 18) og er með 2,5 þriggja stiga körfur að meðaltali í leik eftir tvær umferðir. Framlagið hans er því upp á 27,5 að meðaltali í leik sem er mögnuð tölfræði. Það þarf því ekki að koma á óvart að Ari hoppi beint upp í fyrsta sætið á listanum yfir hæsta framlag táninga í fyrstu tveimur leikjum sínum. Hann er ekki aðeins efstur því hann er langefstur. Metið átti Tryggvi Snær Hlinason frá byrjun hans með Þórsurum tímabilið 2016-17. Tryggvi var með 16,0 framlagsstig að meðaltali í leik í fyrstu tveimur leikjunum en hann var með 6,5 stig, 6,0 fráköst og 3,5 varin skot að meðaltali í þessum leikjum sem voru á móti Stjörnunni og Tindastól. Jón Arnór Stefánsson dettur niður í þriðja sætið en hann var með 16,0 framlagsstig að meðaltali í leik í fyrstu tveimur leikjunm sínum með KR tímabilið 2000-01. Jón Arnór var með 17,5 stig, 3,0 stoðsendingar og 2,5 fráköst að meðaltali í fyrstu tveimur leikjunum. Byrjun Jóns Arnórs var reyndar svolítið sérstök því fyrstu leikir hans á Íslandsmótinu höfðu komið í úrslitakeppninni vorið á undan þar sem hann var með 8,0 stig að meðaltali á 17,4 mínútum í leik þegar KR tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Það tímabil lék hann ekki í deildinni þar sem hann var við nám í Bandaríkjunum. Í fjórða til fimmta sæti er Elvar Már Friðriksson sem var með 14,5 framlagsstig að meðaltali í leik í fyrstu tveimur leikjum sínum með Njarðvík tímabilið 2011-12. Hann var með 16,5 stig og 3,0 stoðsendingar að meðaltali í leik. Við hlið Elvars er Ómar Örn Sævarsson sem skilaði 14,5 framlagsstigum í fyrstu tveimur leikjum sínum með ÍR 2001-02 tímabilið en hann var með 8,5 stig og 9,5 fráköst að meðaltali í leik. Í næstu sætum eru síðan Guðni Hafsteinsson (14,5), Sverrir Þór Sverrisson (14,0), Hermann Hauksson (12,9) og Örlygur Aron Sturluson (11,0).
Bónus-deild karla Valur Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Íslenski boltinn „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ Sjá meira