Körfubolti

Sjáðu skelfi­leg meiðsli Jalen Williams

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jalen Williams var settur á börur á leiðinni út úr húsinu og fór í kjöffarið á sjúkrahús.
Jalen Williams var settur á börur á leiðinni út úr húsinu og fór í kjöffarið á sjúkrahús. Vísir/Joshua Gateley/Getty Images

Jalen Williams, einn lykilmanna Oklahoma City Thunder í NBA-deildinni, varð fyrir alvarlegum meiðslum á vinstri fæti undir lok leiks liðsins gegn Los Angeles Clippers í nótt.

Atvikið átti sér stað þegar rúm mínúta var eftir af leiknum. Williams sótti að körfunni og ætlaði að troða boltanum þegar hann lenti illa eftir snertingu við varnarmenn Clippers.

Williams lá eftir á gólfinu og sjúkralið kom honum þegar til aðstoðar. Fljótlega var ákveðið að bera hann af velli á börum. Það er nokkuð ljóst að leikmaðurinn er brotinn á vinstri fæti. 

Við vörum viðkvæma við myndbandinu hér að neðan. 

 

Atvikið hafði mikil áhrif á leikmenn beggja liða. Shai Gilgeous-Alexander, liðsfélagi Williams hjá Thunder, átti erfitt með að leyna tilfinningum sínum þegar hann sá hvað hafði gerst á parketinu.

Thunder vann leikinn 108-101 og hefur byrjað tímabilið með þremur sigrum í röð. Meiðsli Williams skyggja þó á sigurinn, en hann er einn mikilvægasti leikmaður liðsins og átti stóran þátt í NBA-meistaratitlinum árið 2025. Það má fastlega gera ráð fyrir því að tímabilið sé búið hjá leikmanninum.

Williams glímdi einnig við meiðsli á síðasta tímabili og missti af stórum hluta þess vegna vandamála í aftanverðu læri og endurhæfingar eftir aðgerð á hægri úlnlið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×