Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Freyja Þórisdóttir skrifar 22. október 2026 20:13 Hörður Arnarson nefndi það á starfsmannafundinum þar sem hann tilkynnti um starfslokin að hann væri búinn að starfa sem forstjóri í 27 ár, þar af sautján hjá Landsvirkjun, og hefði lofað eiginkonunni að verja meiri tíma með fjölskyldunni. Vísir/Vilhelm Það vakti mikla athygli þegar Hörður Arnarson, fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, tilkynnti starfslok sín en hann gaf engin skýr svör við því hvers vegna hann hafi ákveðið að hætta fyrr. Nú hefur hann sagt ágreining sem olli starfslokunum meðal annars tilkominn vegna skorts á umboði og trausti í sinn garð en hann gangi mjög sáttur frá borði og fyrirtækið sé á góðum stað.
Greindi Hörður frá þessu þegar hann sat fyrir svörum í viðtalsþættinum Kastljósi hjá Ríkisútvarpinu í kvöld. Hann sagðist þar fyrst og fremst ánægður með ferilinn og sáttur við vegferðina. Þá sagðist hann hafa ákveðið að fara á eigin forsendum og alfarið að eigin frumkvæði en að fjárhagur fyrirtækisins hafi breyst mikið síðan hann tók við taumunum árið 2009. Vantað nauðsynlegt traust Mikið hafi verið fjallað um ágreining sem á að hafa orðið til þess að hann lét fyrr af störfum en hann sagði þann ágreining varða stjórnarhætti fyrirtækisins, sem sé mjög flókið að reka vel. Það sé að miklu leyti vegna eignarhaldsins. „Þetta er fyrirtæki, eigandinn, sem er þjóðin, hefur enga beina aðkomu að rekstri fyrirtækisins en felur fjármálaráðherra, stjórn og forstjóra að gæta sinna hagsmuna,“ sagði hann í viðtalinu. Á því sautján ára tímabili sem hann starfaði sem forstjóri hafi verið átta fjármálaráðherrar og 25 stjórnarmenn. „Það er í raun og veru bæði fjármálaráðherra, sem er pólitískur, sem skipar stjórn sem er skipuð pólitískt,“ sagði hann. Fyrri stjórnir hafi verið skipaðar þannig og verið í eðli sínu pólitískar en nú, með breyttu fyrirkomulagi, velji ráðherra úr hóp. Helsta breytingin snúi að verkaskiptingu og hvernig fólk vinni, hverjir séu boðaðir á fundi og hvernig ákvarðanir séu teknar. Það sé ekki sjálfgefið hvað reksturinn sé góður og það þurfi að halda vel á spöðunum. Ef það verða áföll í rekstri Landsvirkjunar þá hefur það gríðarleg áhrif á samfélagið. Fyrirtæki sem sinni svona mikilvægu hlutverki þurfi að hafa mjög skýrt verklag innanborðs og það þurfi að vera skýrt hvert umboð forstjóra sé. „Mér fannst ég ekki hafa það traust sem þarf að vera til staðar, traust sem ég þarf að hafa sem forstjóri er bæði að eiga þessa flóknu viðskiptasamninga við stærstu fyrirtæki heims, að gæta hagsmuna þjóðarinnar, tala við alla hagsmunaaðila fyrirtækisins,“ sagði Hörður og ítrekaði að umboðinu fylgdi tilfinning sem hann hefði fundið fyrir að vantaði. Það sé ekkert rétt og rangt í þessum efnum. „Þegar svona mikil ábyrgð hvílir á fólki þá þarf að vera mikið traust milli fjármálaráðherra, stjórnar og forstjóra,“ sagði hann. Það hafi oft verið tekist hart en ávallt hægt að komast að niðurstöðu. Ef staðan komi upp að stjórn og forstjóri nái ekki saman sé ekkert óeðlilegt að forstjóri víki. Hann sagðist ganga mjög sáttur frá borði og að fyrirtækið væri á gríðarlega góðum stað. „Þetta er búinn að vera frábær tími. Ég er búinn að vera hérna mjög lengi og er með sterkar skoðanir, kannski verður maður þverari með aldrinum,“ sagði hann og ítrekaði „maður velst ekki í þetta starf nema maður hafi sterkar skoðanir og maður nær ekki árangri með öðru.“ Ánægður og stoltur að leikslokum Þann 1. október boðaði Hörður óvænt til starfsmannafundar en hann tilkynnti þar að hann myndi hætta sem forstjóri Landsvirkjunar en hann tók við starfinu frá því árið 2009. Þá kom fram að Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, muni taka tímabundið við starfi forstjóra frá 1. nóvember, þar til nýr forstjóri verður ráðinn. Í tilkynningu þann sama dag kom fram að hann stígi bæði ánægður og stoltur frá borði eftir þessi sautján ár. „Fyrst og fremst langar mig að þakka öllum þeim sem hafa lagt sitt af mörkum og átt þátt í þeim góða árangri sem við höfum náð fyrir Landsvirkjun og íslenskt samfélag – ekki síst starfsfólki fyrirtækisins. Það er ánægjulegt að skilja við Landsvirkjun jafn sterka og raun ber vitni,“ er haft eftir Herði í tilkynningunni frá því í upphafi mánaðar. Þá veitti Hörður ekki viðtöl í beinu framhaldi af tilkynningunni heldur fór í vikulangt frí til útlanda og hefur svo starfað hjá Landsvirkjun og mun líkt og fyrr segir gera það áfram út október. Hörður var með á fimmtu milljón króna í mánaðarlaun árið 2025 samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar. Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður Landsvirkjunar sagði seinna frá því í samtali við Vísi að Hörður og stjórnin hefðu ekki alltaf verið sammála um allt en samkvæmt heimildum Vísis hafði Hörður sagt ákvörðunina um starfslok sín hafa nokkuð með ágreininginn að gera en fór ekki nánar út í það á fyrrnefndum starfsmannafundi. „Það er ekki frá miklu að segja. Eðlilega er fólk ekki alltaf sammála um allt. Hörður ákvað að taka þetta skref örlítið fyrr en ella,“ sagði Brynja við Vísi. Hún sagði ósættið hafa snúist um vinnubrögð en ekki málefni Landsvirkjunar. Stjórnin vinni að einhverju leyti öðruvísi en fyrri stjórnir, innan þeirra laga og reglna sem um fyrirtækið gilda. Hún greinir ekki frá því hvaða vinnubrögð breyttust eða í hverju ósættið fólst. Hún segir stjórnarfundi ekki hafa verið haldna án Harðar nema þegar málefni hans sjálfs voru rædd. Hún sagði að stjórnin hefði tekið ákvörðun Harðar í sátt og lýsti þakklæti fyrir hans „17 ára glæsilega feril“ hjá Landsvirkjun og það sem hann hefði gert fyrir félagið. Njóti enn trausts Þá ræddi fréttastofa málið við Daða Má Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra daginn eftir að starfslokin voru tilkynnt en hann sagði stjórn Landsvirkjunar enn njóta trausts þrátt fyrir ágreininginn. Spurður hvort hann muni óska eftir fundi með stjórninni eða stjórnarformanninum til að fá nánari skýringar svaraði Daði: „Ég held að það sé full ástæða til að yfirfara það. Það er líka mjög mikilvægt að halda því til haga að Hörður Arnarson hefur lyft grettistaki í rekstri þessa fyrirtækis og íslenska þjóðin getur verið mjög þakklát fyrir að hann hafi varið þessum tíma í að stýra Landsvirkjun, sem hann hefur gert með mjög farsælum hætti.“ Í viðtalinu var borið undir Daða hvort ágreiningurinn hefði snúist um hversu mikinn arð Landsvirkjun ætti að greiða ríkissjóði. Hann sagði svo ekki vera. „Fyrir nokkrum árum tók ég þá ákvörðun að þegar Hörður Arnarson hætti sem forstjóri Landsvirkjunar myndi ég gera slíkt hið sama sem fjármálastjóri. Ég hef því sagt starfi mínu lausu eftir 16 frábær ár,“ skrifaði Rafnar Lárusson, fyrrverandi fjármálastjóri Landsvirkjunar, í færslu sem hann birti á Linkedin þann 15. október. Hann skrifaði enn fremur: „Ég tel mikilvægt að nýr forstjóri fái tækifæri til að velja sér fjármálastjóra enda er náið samstarf þeirra grunnur að góðum árangri.“ Hörður tók við sem forstjóri Landsvirkjunar árið 2009 eftir að hafa starfað sem forstjóri Sjóvár um nokkurra mánaða skeið og leitt endurskipulagningu félagsins. Þar áður starfaði Hörður hjá Marel frá árinu 1985 og þar af sem forstjóri fyrirtækisins í tíu ár, frá 1999 til 2009.
Landsvirkjun Orkumál Rekstur hins opinbera Tengdar fréttir Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, mun taka tímabundið við starfi forstjóra frá 1. nóvember, þar til nýr forstjóri verður ráðinn. 1. október 2026 14:44 Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Landsvirkjun og Elkem hafa skrifað undir nýjan samning um raforkukaup kísiljárnverksmiðjunnar á Grundartanga. 22. október 2026 11:16 Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Áfrýjunarnefnd samkeppnismála felldi úr gildi 1,4 milljarða króna sekt sem Samkeppniseftirlitið lagði á Landsvirkjun vegna sölu á raforku til Landsnets. Landsvirkjun segir niðurstöðuna staðfesta að ekki hafi steinn staðið yfir steini í rannsókn Samkeppniseftirlitsins. 19. október 2026 11:08 Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Sjá meira
Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, mun taka tímabundið við starfi forstjóra frá 1. nóvember, þar til nýr forstjóri verður ráðinn. 1. október 2026 14:44
Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Landsvirkjun og Elkem hafa skrifað undir nýjan samning um raforkukaup kísiljárnverksmiðjunnar á Grundartanga. 22. október 2026 11:16
Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Áfrýjunarnefnd samkeppnismála felldi úr gildi 1,4 milljarða króna sekt sem Samkeppniseftirlitið lagði á Landsvirkjun vegna sölu á raforku til Landsnets. Landsvirkjun segir niðurstöðuna staðfesta að ekki hafi steinn staðið yfir steini í rannsókn Samkeppniseftirlitsins. 19. október 2026 11:08