Neytendur

Ís­búð Vestur­bæjar í Skip­holti lokað

Freyja Þórisdóttir skrifar
Það voru eflaust einhverjir sem ráku upp stór augu og sumir hafa mögulega farið aftur heim vonsviknir og alls íslausir.
Það voru eflaust einhverjir sem ráku upp stór augu og sumir hafa mögulega farið aftur heim vonsviknir og alls íslausir. Aðsend

Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti hefur verið lokað en starfsemin verður flutt í Grímsbæ. Þá var það sama uppi á teningnum þegar búðinni var lokað á Grensásvegi í desember fyrir þremur árum.

Nú er hægt að velja um fimm staðsetningar en Ísbúð Vesturbæjar er með starfsemi á Hagamel í Reykjavík, Bæjarlind í Kópavogi, Fjarðargötu í Hafnarfirði, Skagabraut á Akranesi og sem fyrr segir í Grímsbæ sem er við Efstaland í Reykjavík.

Þó kom ekkert fram um lokunina á samfélagsmiðlareikningum Ísbúðarinnar en staðsetning í Skipholti er jafnframt ennþá talin upp á vefsíðu Ísbúðarinnar. Þá hefur Ísbúðin staðið lengst af við Hagamel í Vesturbæ Reykjavíkur eða frá árinu 1971.

Það á enn eftir að uppfæra undirsíðuna sem snýr að staðsetningu ísbúðanna.Skjáskot/Ísbúð Vesturbæjar

Árið 2023 var síðasti kúnninn afgreiddur í Ísbúð Vesturbæjar á Grensásvegi en þá var myndband birt á TikTok-reikningi ísbúðarinnar og fólk hvatt til að mæta á síðasta opnunardaginn. Fréttastofan náði þá tali af starfsmanni sem stóð vaktina síðasta daginn en sá sagði ekki að sjá að fólk hefði ætlað sé að fjölmenna í ísbíltúr.

„Ég heyrði frá fullt af fólki að það hefði áhuga á að mæta af því að dagurinn í dag væri sá síðasti en það er enginn sjáanlegur munur,“ sagði hann. Dagurinn hafi verið hinn rólegasti.


Tengdar fréttir

Ís­búð Vestur­bæjar á Grens­ás­vegi lokað í dag

Ísbúð Vesturbæjar við Grensásveg verður lokað í dag. Starfsemin verður flutt í nýja ísbúð í Grímsbæ en það er ekki vitað hvenær hún verður opnuð. Starfsmaður segir daginn hafa verið heldur rólegan.

Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar

Félag ferðaþjónsins Ingólfs Ragnars Axelssonar, sem rekur Tröll ferðaþjónustu, hyggst kaupa Ísbúð Vesturbæjar af Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, á 215 milljónir króna. Kaupin eru háð samþykki frá Samkeppniseftirlitinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×