Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Freyja Þórisdóttir skrifar 22. október 2026 17:29 Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair. Sýn/Arnar Hagnaður flugfélagsins Icelandair eftir skatta nam tólf milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2026 samanborið við sjö milljarða króna á síðasta ári. Þó eru horfur fyrir fjórða ársfjórðung krefjandi og gert er ráð fyrir að afkoma fyrir árið í heild verði neikvæð.
Kemur þetta fram í uppgjöri fyrir ársfjórðunginn en þar er einnig haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra flugfélagsins, að reksturinn sé á réttri leið þrátt fyrir margt sem hafði neikvæð áhrif á afkomuna. Skili árangri „Rekstur Icelandair var sterkur í fjórðungnum og við náðum góðum árangri í kjarnastarfseminni þrátt fyrir sögulega hátt eldsneytisverð, óhagstæða gengisþróun og verkfallsaðgerðir sem höfðu neikvæð áhrif á afkomuna. EBIT rekstrarbati, mettekjur og sterk lausafjárstaða sýna að rekstur félagsins er á réttri leið. Á sama tíma eru þær breytingar sem við erum að gera þvert á félagið að skila raunverulegum árangri sem sést víða í rekstrinum,“ er haft eftir honum. Þá segir einnig að mettekjur á ársfjórðungnum hafi aukist um 12 prósent og séu að fjárhæð 80,5 milljarðar króna en í uppgjörinu er snert á þeim áhrifum sem verkfall Flugvirkjafélags Íslands hafi haft. Þau hafi verið neikvæð og valdið því að afkoman væri 500 milljónum minni en ella. Ná samningum sé lykilþáttur „Í ljósi viðvarandi áskorana í rekstrarumhverfinu, hás eldsneytisverðs og óhagstæðrar gengisþróunar fyrir útflutningsfyrirtæki á Íslandi, gerum við ráð fyrir að tap verði á fjórða ársfjórðungi og á árinu í heild,“ er haft eftir Boga en fram kemur í uppgjörinu að gert sé ráð fyrir því að afkoma ársins fyrir árið í heild verði neikvæð sem nemi um 2,5 til 3,7 milljörðum króna. Því sé áhersla stjórnarinnar fyrst og fremst á að hagræða í rekstrinum, einfalda fyrirtækið og auka skilvirkni. „Að ná samningum við flugstéttirnar á sjálfbærum grunni og þar með tryggja eftirsótt störf í flugrekstri á Íslandi er lykilþáttur á þessari vegferð,“ kemur þar jafnframt fram. Á sama tíma sé haldið áfram að gera breytingar á félaginu og sé endurnýjun flotans og undirbúningur við komu A321XLR-vélanna hluti af því. „Markmið okkar er skýrt: að byggja upp einfaldara og skilvirkara félag sem er vel í stakk búið til að nýta ný tækifæri þegar aðstæður batna. Fjárhagsstaða félagsins er traust og er lausafjárstaðan enn betri en á sama tíma í fyrra, sem er sterkur grunnur til að byggja á,“ er haft eftir Boga. Punktar úr uppgjörinu fyrir þriðja ársfjórðung 2026: Met tekjur að fjárhæð 80,5 milljarðar króna, aukning um 12% EBIT 14,8 milljarðar króna, bæting um 5,7 milljarða króna. EBIT hlutfall hækkaði í 18,4% úr 12,7% Afkoman batnaði þrátt fyrir 1,6 milljarða króna hækkun eldsneytiskostnaðar á milli ára að teknu tilliti til áhrifa eldsneytisvarna Einingatekjur jukust um 18% sem endurspeglar 17% hækkun á tekjum á hvern seldan sætiskílómetra (e. yield) og bætta sætanýtingu um 0,6 prósentustig Einingakostnaður hækkaði um 10%, aðallega vegna hás eldsneytisverðs Verkfall Flugvirkjafélags Íslands hafði neikvæð áhrif á EBIT sem nam um 500 milljónum króna Hagnaður eftir skatta nam 11,8 milljörðum króna samanborið við 7,0 milljarða króna á síðasta ári Lausafjárstaða var 66,7 milljarðar króna í lok fjórðungsins, aukning um 5,4 milljarða króna samanborið við 3. ársfjórðung 2025 Horfur fyrir fjórða ársfjórðung eru krefjandi og búist er við að áframhaldandi kostnaðarhækkanir, sérstaklega hækkun eldsneytisverðs muni hafa áhrif á afkomuna Gert er ráð fyrir að EBIT fyrir árið í heild verði neikvæð sem nemur 2,5-3,7 milljörðum króna (20-30 milljónum USD)
Icelandair Flug Uppgjör og ársreikningar Tengdar fréttir „Við erum ekki að byrja á núlli“ Ríkissáttasemjari segir mikilvægt að hafa í huga að ekki sé verið að byrja á núlli í viðræðum Félags íslenskra flugvirkja og Icelandair en fyrsti fundur deiluaðila eftir að verkfallsaðgerðum var aflýst hófst klukkan tíu. 25. september 2026 10:29 Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél „Icelandair hefur átt í góðu samstarfi við Heart Aerospace og fylgst grannt með framvindu verkefna félagsins undanfarin ár,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, spurður um stöðu mála félagsins gagnvart Heart Aerospace. 30. september 2026 15:25 Play komið í eignasafn Icelandair Tæplega helmingshlutur í maltneska félaginu Fly Play Europe Holdco ehf. er nú í eigu Icelandair. Félagið er með maltneskt flugrekstrarleyfi. Markmiðið er að auka sveigjanleika félagsins og skapa möguleika á hagræðingu í flugrekstrinum á Íslandi. 19. október 2026 09:57 Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira
„Við erum ekki að byrja á núlli“ Ríkissáttasemjari segir mikilvægt að hafa í huga að ekki sé verið að byrja á núlli í viðræðum Félags íslenskra flugvirkja og Icelandair en fyrsti fundur deiluaðila eftir að verkfallsaðgerðum var aflýst hófst klukkan tíu. 25. september 2026 10:29
Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél „Icelandair hefur átt í góðu samstarfi við Heart Aerospace og fylgst grannt með framvindu verkefna félagsins undanfarin ár,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, spurður um stöðu mála félagsins gagnvart Heart Aerospace. 30. september 2026 15:25
Play komið í eignasafn Icelandair Tæplega helmingshlutur í maltneska félaginu Fly Play Europe Holdco ehf. er nú í eigu Icelandair. Félagið er með maltneskt flugrekstrarleyfi. Markmiðið er að auka sveigjanleika félagsins og skapa möguleika á hagræðingu í flugrekstrinum á Íslandi. 19. október 2026 09:57