Viðskipti erlent

EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims

Samúel Karl Ólason skrifar
BioWare hefur gert marga góða og fræga hlutverkaleiki en á undanförnum árum hafa forsvarsmenn fyrirtækisins misstigið sig nokkrum sinnum.
BioWare hefur gert marga góða og fræga hlutverkaleiki en á undanförnum árum hafa forsvarsmenn fyrirtækisins misstigið sig nokkrum sinnum.

Nýir eigendur mjög skuldsetts Electronic Arts hafa tekið þá ákvörðun að loka einu af farsælustu og þekktustu leikjafyrirtækjum heims. Um fjögur hundruð starfsmönnum EA hefur verið sagt upp og fyrirtækinu BioWare verður lokað. Þá er búið að hætta við framleiðslu fimmta leiksins í hinni vinsælu seríu Mass Effect.

Electronic Arts er þekkt fyrir að gefa út leiki eins og FIFA, Madden og aðra íþróttaleiki, auk Sims, Battlefield og Mass Effect, svo einhverjir séu nefndir.

Fyrirtækið var nýlega keypt af hópi fjárfesta, sem leiddur var af PIF, opinberum fjárfestingasjóði Sádi-Arabíu, og inniheldur meðal annars Jared Kushner, tengdason Donalds Trump. Sú yfirtaka kostaði um 55 milljarða dala og var talin stærsta skuldsetta yfirtaka sögunnar en það þýðir að hún var að miklu leyti fjármögnuð með lántöku sem EA mun þurfa að greiða í framtíðinni.

Nýir forsvarsmenn BioWare hétu því að draga verulega úr kostnaði á næstunni. Þannig átti að spara um 700 milljónir dala árlega og átti meðal annars að gera það með uppsögnum. Þá töldu greinendur að sérstök áhersla yrði lögð á vinsælustu leikjaseríur fyrirtækisins eins og Sims og íþróttaleikina.


Framleiddu gífurlega vinsæla leiki

BioWare var stofnað í Kanada árið 1995 og var eitt sinn meðal stærstu leikjafyrirtækja heims. Á undanförnum þremur áratugum hafa starfsmenn þess framleitt þó nokkra gífurlega vinsæla tölvuleiki.

Fyrirtækið sérhæfði sig í hlutverkaleikjum þar sem spilarar gátu sett sig í spor hetja í umfangsmiklum söguheimum, hvort sem það gerðist í ævintýraheimum eða í geimnum, og þurftu oft að taka stórar ákvarðanir sem höfðu mikil áhrif í leikjunum.

Meðal þekktustu leikja fyrirtækisins eru gömlu Baldur‘s Gate-leikirnir, Mass Effect-serían, Neverwinter Knights, Dragon Age-serían og Star Wars: Knights og the old Republic.

Í yfirlýsingu sem birt var á samfélagsmiðlum BioWare í gær var spilurum þakkað fyrir að vera hluti af sögu fyrirtækisins.

„Nú, eftir rúma þrjá áratugi af sameiginlegum ævintýrum, verður BioWare lokað og framleiðslu næsta Mass Effect leikjar verður hætt,“ sagði í yfirlýsingunni.

„Það sem kynslóðir af BioWare byggðu saman er eitthvað til að hylla og muna eftir. Þessir leikir urðu svo mikið meira vegna þess að þið spiluðuð þá, rökrædduð ákvarðanir ykkar, urðuð ástfangin af persónunum og gerðuð þessa söguheima að ykkar eigin.“


Þó nokkur feilspor

Margt hefur þó gengið á á undanförnum árum og hefur BioWare ekki tekist að fanga áhuga leikjaspilara eins og áður. Þegar tilkynnt var í gær að fyrirtækinu yrði lokað störfuðu þar um fimmtíu manns.

EA keypti BioWare árið 2007 og eru leikjaspilarar gjarnir á að segja að vandræði fyrirtækisins megi rekja til þeirra kaupa. Árið 2019 gaf BioWare út leikinn Anthem, þar sem óhætt er að segja að starfsmenn fyrirtækisins hafi verið látnir stíga út fyrir þægindaramma sinn.

Anthem var ekki hlutverkaleikur eins og BioWare sérhæfði sig í, heldur var þetta fjölspilunarskotleikur og var markmiðið að reyna að fanga spilara sem höfðu áhuga á sambærilegum leikjum eins og Fortnite og Overwatch.

Það gekk ekki eftir. Framleiðsla leiksins einkenndist af miklum vandræðum og niðurstaðan varð eftir því.

Sjá einnig: Groundhog day tölvuleikjanna

Nýjustu leikir BioWare í seríunum Dragon Age og Mass Effect þóttu sömuleiðis ekki standast sömu gæðakröfur og fyrri leikirnir í seríunum vinsælu. Mass Effect: Andromeda kom út árið 2017 og Dragon Age: The Veilguard árið 2024.

Eins og áður kom fram unnu starfsmenn fyrirtækisins að nýjum leik í söguheimi Mass Effect en sá leikur mun aldrei líta dagsins ljós.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×