Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 14. september 2026 19:02 Trump var á Norður-Írlandi um helgina þar sem hann spilaði golf. EPA Donald Trump Bandaríkjaforseti gagnrýndi forstjóra gervigreindarfyrirtækisins Anthropic eftir að hann kallaði eftir því að hægt yrði á þróun gervigreindar á heimsvísu. Gengi hlutabréfa hefur hríðfallið, sér í lagi eftir að aðrir forstjórar tóku undir ákallið. Kjósendur virðast ekki ánægðir með hvernig Trump hefur höndlað málið.
Gengi hlutabréfa í tæknifyrirtækjum víðs vegar um heiminn hefur fallið eftir að forsvarsmenn einna stærstu gervigreindarfyrirtækjanna kölluðu eftir því að hægt yrði á framþróun á sviði gervigreindar. Hjá bandarískum tæknifyrirtækjum hefur gengið fallið um allt að tíu prósent. Dario Amodei, forstjóri og meðstofnandi Anthropic sem á gervigreindarmállíkanið Claude, skrifaði grein um helgina þar sem hann kallaði eftir því að hægt yrði á þróun gervigreindar á heimsvísu. „Ég er enn þeirrar trúar að gervigreind geti bætt lífsgæði mannkyns til muna. Löngun mín til að ná fram þeim ávinningi er óskert. En ávinningurinn næst aðeins fram ef við þróum tæknina á réttan hátt og - svo lengi sem við nýtum vel þann tíma sem við vinnum okkur inn vel - er það þess virði að gæta sérstakrar varkárni til að gera það rétt,“ skrifaði Amodei í greininni. Sam Altman, forstjóri OpenAI sem á gervigreindarmállíkanið Claude, og Elon Musk, sem þróar spjallmennið Grok, hafa báðir tekið undir ákall Amodei. „Sjúklegt samsæri“ Í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social hefur Trump Bandaríkjaforseti þvertekið fyrir að þörf sé á því að hægja á framþróun gervigreindar. „Eina eftirlitið eða „öryggisgrindin“ sem gervigreind þarfnast er STERKUR OG SNJALL FORSETI (með háa greindarvísitölu!) og Bandaríkin hafa slíkan, svo um munar!“ skrifaði forsetinn í færslunni. Ríkisstjórn hans hefði komið í veg fyrir að fólk líkt og Amodei, sem þykist vera „fullkominn lítill engill,“ hefði gert slæma eða hugsanlega slæma hluti. Þessa færslu birti Donald Trump á samfélagsmiðlinum Truth Social, sem er í hans eigu.Skjáskot „Við höfum nú þegar gríðarlegt REFSI- OG REGLUGERÐARVALD yfir þessum fyrirtækjum! Það er SJÚKLEGT samsæri í gangi gegn gervigreind og gagnaverum og eini aðilinn sem er ánægður með það er Kína. SÁ SEM SIGRAR Í GERVIGREIND, SIGRAR!“ heldur Trump áfram. Óttast Kínverjana Samkeppnin milli tæknifyrirtækja Kína og Bandaríkjanna er stór hluti af umræðunni um hægari framþróun tækninnar. Þarna ítrekar Trump áhyggjur sínar, eitthvað sem hann hefur talað um áður, yfir því að Kínverjar muni standa sig betur á sviði gervigreindar. „Við erum á undan Kína, og öllum öðrum, og munum halda því áfram. Samsæriskenningasmiðir, landráðamenn, svikarar og uppljóstrar, VARIÐ YKKUR!“ skrifaði Trump. Í grein Amodei tekur hann fram að það megi ekki hægja það mikið á framþróuninni að Kínverjar nái að skara fram úr á sviðinu. Stjórni Kína gervigreind heimsins geti það sett Bandaríkin og restina af heiminum í afar slæma stöðu. Hann útlistar nokkur atriði sem hægt væri að gera til að koma í veg fyrir að Kínverjarnir komist fram úr þeim. Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins um málið segir að fulltrúar Kína hafi lengi viljað frekari yfirráð yfir gervigreind. Xi Jinping, forseti Kína, á fund með Trump í mánuðinum þar sem málefni gervigreindar verðar líklegast á dagskránni. Ekki ánægð með Trump Málefni gervigreindar hafa orðið töluvert meira áberandi í aðdraganda þingkosninganna í Bandaríkjunum sem fara fram í nóvember. Hins vegar eru kjósendur almennt ekki ánægðir með hvernig Trump hefur höndlað málefnið hingað til samkvæmt umfjöllun CNN. Meira en helmingur kjósenda er gegn frambjóðendum sem vilja byggja gagnver í þeirra nærumhverfi, alls 54 prósent. Einungis fimmtán prósent kjósenda vilja frambjóðendur sem leggja slíkt til.
Donald Trump Bandaríkin Gervigreind Elon Musk Kína Mest lesið Flugvirkjar fara í verkfall Viðskipti innlent Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Viðskipti innlent Telur yfir milljarð á dag í húfi Viðskipti innlent Hafa samband við farþega Viðskipti innlent Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Viðskipti innlent Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Viðskipti innlent Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til Atvinnulíf Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Viðskipti innlent Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent Gengið aldrei verið lægra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Innkalla milljónir bíla vegna innfelldra hurðahúna Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Fyrrverandi ríkasti maður Asíu dæmdur í lífstíðarfangelsi Loka á umdeilda veðmálasíðu í Danmörku Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Methagnaður norska olíusjóðsins Nokkrir tilbúnir að greiða Trump fyrir innherjaupplýsingar Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Sjá meira
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent
Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Viðskipti erlent